Eftir að kvöldfréttir Sýnar voru sagðar í síðasta sinn þann 31. ágúst hafa verið uppi vangaveltur um framtíð Kryddsíldar. Aldrei stóð til að gera nokkra breytingu á þættinum sem hefur verið fastur liður á síðasta degi ársins í sjónvarpi í 36 ár og enn lengur í útvarpi því hann hóf göngu sína á Bylgjunni árið 1986.
Rýnt var í sögu Kryddsíldar með nokkrum fastagestum í fyrra.
Umsjónarmenn Kryddsíldar í ár verða þær Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttamaður og Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri sem hafa starfað saman um árabil og stýrðu kappræðum fréttastofu Sýnar í maí sem vöktu mikla athygli.
Kappræðurnar í heild má sjá að neðan.
Telma Tómasson verður að sjálfsögðu á sínum stað sem gestgjafi þáttarins sem verður hátíðlegur að venju með gestum í sal, hljómsveit og miklu stuði. Tilkynnt verður um val fréttastofunnar á manni ársins og eftirminnilegt ár í stjórnmálunum gert upp.
Pólitísk umræða er fyrirferðamikil en þó er aldrei langt í húmorinn og því síður tárin sem stundum falla þegar gestir fara á persónulegri nótur.
Kryddsíldina frá því í fyrra má sjá að neðan.
Fréttastofa Sýnar hlakkar til að kveðja árið 2026 með sem allra flestum landsmönnum, hér heima sem erlendis, klukkan 14 á gamlársdag.