Þetta kemur fram í yfirlýsingu bandarískra flugmálayfirvalda (FAA), sem segjast mun rannsaka slysið ásamt Samgönguöryggisráði Bandaríkjanna (NTSB). Slysið varð nálægt Military Trail, á milli Cresthaven Boulevard og 10th Avenue North, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá lögreglustjóraembætti í Palm Beach.
Flugvélin var af gerðinni Learjet 60 og var stefnt til Bahamaeyja frá Austin-Bergstrom-alþjóðaflugvellinum, að sögn FAA.
Flugvélin lækkaði flugið um 27.000 fet á einni mínútu, rétt áður en flugferilsgögn rofnuðu, eins og sjá má á flugkorti hjá ADS-B Exchange.
Á myndskeiði af atvikinu má sjá flugvélina hrapa með nefið niður á umferðargötu og í kjölfarið verður mikil sprenging.
Vert er að vara við myndefninu hér að neðan.
Slysstaðurinn er um fjórar sex kílómetrum suður af flugvellinum í vestanverðri Palm Beach, sem var nefndur eftir Donald Trump forseta fyrr á þessu ári.
Öllum akreinum Military Trail í norður- og suðurátt hefur verið lokað þar til annað verður tilkynnt, að sögn embættismanna, og ökumönnum er ráðlagt að forðast svæðið og velja aðrar leiðir.
CNN greinir frá því að Trump hafi verið í West Palm Beach fyrr í dag en farið frá flugvellinum um borð í Air Force One rúmri klukkustund áður en slysið varð.