Slagurinn um öldungardeildarsætið í Texas-ríki gæti orðið einn sá mest spennandi í þingkosningunum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Demókratar hafa ekki átt það sæti í meira en þrjátíu ár.
Kosið er um 35 sæti af 100 í öldungadeildinni. Þar eru Repúblikanar með fimmtíu og þrjá þingmenn og Demókratar fjörutíu og sjö. Af þessum 35 sem kosið verður um eru 22 rauð, eða tilheyra Repúblikönum og 13 blá eða tilheyra Demókrötum.
Sem sagt, Demókratar þurfa að halda sínum og breyta nokkrum rauðum í blá til þess að ná meirihluta. Fyrirfram var talið að Repúblikanar ættu sigurinn vísan í Texas, eins og í flestum öðrum kosningum í ríkinu síðustu ár og áratugi.
En eftir að Repúblikanar höfnuðu sitjandi öldungadeildarþingmanni í forvali og völdu nýjan varð þetta að alvöru keppni. Sá heitir Ken Paxton og er 63 ára.
Paxton á sér vafasama sögu, meðal annars hélt hann fram hjá konunni sinni með aðstoðarkonu og var sakaður um mútuþægni og brot í starfi sem ríkissaksóknari Texas af eigin flokksmönnum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti studdi Paxton dyggilega í forvalinu. Forsetinn hefur líka fundið upp á niðrandi viðurnefni á frambjóðanda Demókrata í Texas, James Talarico. „Texasbúar sigra Demókratakommúnista-bjánann James Talaskrípó,“ sagði Trump á kosningfundi fyrir helgi.
Talarico er 37 ára ríkisþingmaður, prestur og fyrrverandi kennari. Samkvæmt nýjustu spá Nates Silver, sem er einn helsti kosningasérfræðingurinn vestanhafs, hefur Talarico naumt forskot, 49,1% fylgi, en Paxton 46,2%.