Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu og skipuleggjandi hátíðarinnar, segir mikla spennu í loftinu. Undirbúningur stendur nú sem hæst og mikið verður um að vera í næstu viku. Fjörið hefst á mánudag með svokallaðri bransaveislu, hátíðin verður síðan formlega sett á miðvikudag með tónleikum á hjúkrunarheimilinu Grund og sannkölluð tónlistarveisla tekur svo við. Um eitt hundrað tónlistarmenn eða hljómsveitir koma fram á nokkrum stöðum.
Búist er við hátt í átta þúsund tónleikagestum og um helmingur þeirra hefur sérstaklega gert sér ferð til Íslands vegna hátíðarinnar, að sögn Ísleifs. Umfangið sé svipað og á síðustu árum og mikil ásókn er í að spila á hátíðinni.
„Allir umboðsmenn í heimi sem eru með „up and coming bönd“ reyna að koma sínu bandi inn þannig að við erum í stöðu til þess að velja það allra besta úr öllum heimshornum. Þannig geta allir treyst því að ef þú komst inn á Iceland Airwaves, að þá er eitthvað varið í þig.“
Yfir eitt þúsund sóttust eftir því að spila á hátíðinni.
„Við erum að hafna svona níutíu prósentum af beiðnunum. Þetta eru svona fimm til tíu prósent sem komast inn.“
Sú breyting verður í ár að engir tónleikar verða á Listasafni Reykjavíkur líkt og verið hefur.
„Þetta er svolítið rosalegt að einn af hornsteinum hátíðarinnar detti út. En það er bara stórt og dýrt þegar allt er talið með, gæsla, starfsfólk, græjur og allt það. Staðurinn er bara of dýr og þú þarft að borga ansi mikið fyrir erlend stærri nöfn til að halda honum fullum og þetta var bara ekki að ganga upp.“
Þess í stað verður ráðhús Reykjavíkur að tónleikahöll.
„Þarna er bara frábær salur á jarðhæðinni, rosalega flottur. Stórir gluggar sem snúa út að Tjörninni og við höfum bara mikla trú á því að þetta sé staður sem er kominn til að vera og hérna. Fólkið hjá Reykjavíkurborg greiddi götu okkar og kláraði með okkur öll leyfi og allt sem þurfti til að koma þessu í gegn. Við erum mjög þakklát fyrir það og það má kannski segja að þetta sé bara nýja Listasafnið,“ segir Ísleifur.