Tveir dagar eru til þingkosninga í Bandaríkjunum þar sem kosið er um þriðjung sæta í öldungadeild þingsins og öll sætin í fulltrúadeildinni. Kosningarnar geta haft mikil áhrif á möguleika Donald Trumps Bandaríkjaforseta til að ná sínum áherslum í gegn.
Indriði H. Indriðason, prófessor í stjórnmálafræði við Kaliforníuháskóla í Riverside, segir að Demókratar eigi sigurinn vísan í fulltrúadeildinni. Baráttan um öldungadeildina sé hins vegar meira spennandi.
„Þar má eiginlega segja að sé hnífjafnt þegar horft er á spurningakannanirnar og í raun bara ómögulegt að spá fyrir um hvernig það fer. En það virðist vera að Demókratarnir séu metnir örlítið líklegri til að ná meirihluta, en það munar mjög litlu,“ segir Indriði.
Fjögur fylki líkleg til að ráða úrslitum
Stóra spurningin sé hvernig kjörsókn verður. Trump hafi hrapað í vinsældum og koma þurfi í ljós hvort stuðningsmenn Repúblikana láti það hafa áhrif kjörsókn sína. Spurður hvar sé líklegt að mesta spennan verði nefnir Indriði fjögur ríki: Ohio, Alaska, Kansas og Texas.
„Í efri deildinni eru þetta ekki nema svona tólf, fjórtán fylki þar sem báðir frambjóðendur eiga möguleika á að vinna, restin er eiginlega fyrir fram ákveðin, annaðhvort sterk Demókrataríki eða Repúblikanaríki. Þannig að ég held að það komi til með að ráðast af þessum fjórum fylkjum hvernig efri deildin kemur til með að líta út að kvöldi þriðjudags.“