Ekki liggur fyrir hvort dómari hafi samþykkt varðhald yfir manninum að svo stöddu. Maðurinn var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur á níunda tímanum í kvöld.
Lögregla brást í nótt við tilkynningu um líkamsárás og fann tvo menn með stunguáverka á vettvangi árásarinnar á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti.
Voru hinir særðu fluttir á slysadeild þar sem annar þeirra var fljótlega úrskurðaður látinn, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu í morgun.
Þrír menn voru síðar handteknir annars staðar í hverfinu og hafa verið í haldi lögreglu vegna málsins í dag. Hinir handteknu eru allir íslenskir ríkisborgarar líkt og maðurinn sem lést, en hann var á fertugsaldri. Rúv greindi frá því að meðal hinna handteknu væru maður á fertugsaldri og tæplega sextugur faðir hans.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Meðal þess sem til rannsóknar er í manndrápsmálinu í Breiðholti eru möguleg tengsl á milli aðila málsins.
Eftir því sem lögregla kemst næst þekktust gerendur og þolendur en að sögn yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði er sá þáttur málsins áfram til skoðunar, eins og fram kom í frétt Vísis í dag.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.