Að sögn RÚV er sonurinn á fertugsaldri og faðirinn tæplega sextugur en ekki liggi fyrir hver aðkoma hins síðarnefnda var. Feðgarnir séu báðir með áverka eftir átökin. Mbl.is hefur jafnframt eftir ónafngreindum heimildum að lögregla hafi fundið árásarvopnið í fjölbýlishúsi í hverfinu síðdegis í dag.
Lögregla greindi frá því fyrir hádegi að karlmaður á fertugsaldri væri látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt. Utandyra hafi fundist tveir menn vera með alvarlega áverka sem taldir eru hafa verið eftir hnífsstungur. Voru þeir fluttir á slysadeild þar sem annar var fljótlega úrskurðaður látinn. Hinn lægi á gjörgæsludeild.
Fréttin er í vinnslu.