Þetta staðfestir verjandi hans, Elimar Hauksson, í samtali við Vísi en hann kvaðst lögum samkvæmt ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið né gefið upp hve lengi gæsluvarðhaldið varir. Enn sé óákveðið hvort varðhaldsúrskurður Héraðsdóms verði kærður til Landsréttar.
Í upphafi voru þrír handteknir vegna málsins sem tengist mannsláti eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt en lögreglan leiddi aðeins einn mann fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld.
Hann er samkvæmt heimildum Vísis grunaður um að hafa beitt hnífi er hann lenti í átökum við tvo menn í nótt.
Um vikulangt varðhald er að ræða að sögn Rúv, sem greinir jafnframt frá því að maðurinn sé á fertugsaldri. Faðir hans hafi einnig verið meðal handtekinna í dag.
Lögregla brást í nótt við tilkynningu um líkamsárás og fann tvo menn með stunguáverka á vettvangi árásarinnar á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti. Voru hinir særðu fluttir á slysadeild þar sem annar þeirra var fljótlega úrskurðaður látinn, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu í morgun. Þrír menn voru síðar handteknir annars staðar í hverfinu.