Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, grunaður um aðild að manndrápi í Breiðholti í nótt.
Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld. Fyrr í dag var sagt frá því að íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans væru í haldi lögreglu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er það sonurinn sem leiddur var fyrir dómara.
Sonurinn er talinn hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn. Sá sem lifði árásina af er mikið særður og er á gjörgæsludeild.
Elimar Hauksson, verjandi mannsins, segist ekki mega tjá sig um málið á þessu stigi. Hann segir að þeir hafi tekið sér lögbundinn frest til að ákveða hvort varðhaldsúrskurður Héraðsdóms verði kærður til Landsréttar.
Tökumaður fréttastofu var við Héraðsdóm Reykjavíkur þegar lögregla kom með manninn og þegar ekið var með hann á brott.
Fréttin hefur verið uppfærð með niðurstöðu gæsluvarðhaldsúrskurðar.