Greint var frá því á Vísi fyrr í kvöld að sonurinn hefði verið skikkaður í gæsluvarðhald en samkvæmt heimildum fréttastofu var faðirinn einnig úrskurðaður í varðhald síðar í kvöld.
Sonurinn, sem er 34 ára, er grunaður um að hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn í Breiðholti í nótt og veitt þeim alvarlega stunguáverka með þeim afleiðingum að annar þeirra lést á slysadeild síðar um nóttina.
Voru þeir úrskurðaðir í varðhald til 9. nóvember.
Möguleg fjárkúgun
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást í nótt við tilkynningu um líkamsárás og fann tvo menn með stunguáverka á vettvangi árásarinnar á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti í Reykjavík.
Voru hinir særðu fluttir á slysadeild þar sem annar þeirra var fljótlega úrskurðaður látinn, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu í morgun.
Þrír menn voru síðar handteknir annars staðar í hverfinu en ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir þriðja manninum samkvæmt tilkynningu lögreglu frá því í kvöld.
Samkvæmt heimildum Vísis er til skoðunar hvort að hinn látni og hinn særði hafi reynt að kúga fé út úr hnífsstungumanninum.
Faðirinn, sem er 59 ára, var einnig á vettvangi og slasaðist illa á fingri samkvæmt heimildum fréttastofu.
Með fjölda dóma á bakinu
Samkvæmt heimildum Vísis var hinn látni 34 ára en sá var með fjölda dóma á bakinu sem meðal annars varða fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað.
Hinn særði, sem er 35 ára, hefur meðal annars verið sakfelldur fyrir nauðgun, líkamsárás og innbrot. Hann er enn á gjörgæsludeild Landspítalans með áverka eftir nokkrar hnífsstungur.
Feðgarnir verða vistaðir í einangrun í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði.