Tveir voru í kvöld úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. nóvember vegna líkamsárásar sem átti sér stað í Breiðholti í nótt. Einn er látinn eftir árásina og annar liggur alvarlega slasaður á gjörgæslu.Þrír voru handteknir vegna málsins en ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir þeim þriðja og er hann nú laus úr haldi.
Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna Breiðholtsmálsins