Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. nóvember grunaðir um aðild að manndrápi í Breiðholti í nótt.
Fyrr í dag var sagt frá því að íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans væru í haldi lögreglu.
Tökumaður fréttastofu var við Héraðsdóm Reykjavíkur í kvöld þegar lögregla kom með annan mannanna og þegar ekið var með hann á brott. Síðar fékkst staðfest í tilkynningu frá lögreglu að báðir mennirnir hafi verið látnir sæta gæsluvarðhaldi.
Sonurinn er talinn hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn. Sá sem lifði árásina af er mikið særður og er á gjörgæsludeild.
Elimar Hauksson, verjandi mannsins, segist ekki mega tjá sig um málið á þessu stigi. Hann segir að þeir hafi tekið sér lögbundinn frest til að ákveða hvort varðhaldsúrskurður Héraðsdóms verði kærður til Landsréttar.
Fréttin hefur verið uppfærð með niðurstöðu gæsluvarðhaldsúrskurðar og tilkynningu lögreglu.