Lögreglan á Norðurlandi sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag eftir að þeim barst ábending um að aðskotahlutir hefðu fundist í sælgæti sem var dreift í gærkvöldi vegna hrekkjavökunnar.Nálum hafði verið stungið í nokkur Milky Way og Þrista-súkkulaðistykki en lögreglan biður foreldra um að yfirfara sælgæti sem börn þeirra fengu í gærkvöldi og gæta varúðar.
Lögreglan varaði við nálum sem fundust í nammi á Akureyri - Reyndist vera hrekkur