Íslenskur karlmaður á fertugsaldri og faðir hans eru meðal þeirra þriggja sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á stunguárás í Breiðholti í nótt. Frá þessu greinir RÚV. Þolendur árásarinnar eru tveir. Annar þeirra, karlmaður á fertugsaldri, var úrkurðaður látinn á slysadeild og hinn er mikið særður á gjörgæsludeild. Að sögn RÚV er sonurinn talinn hafa beitt hnífnum á árásarþola í átökum á milli þeirra.
Feðgar í haldi vegna stunguárásarinnar í Breiðholti