Þetta staðfestir María Borg Gunnars varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra en hún segir málið hafa verið tilkynnt nú á þriðja tímanum. Í færslu sem birt var í Facebook-hópnum Hrekkjavaka á Akureyri voru birtar myndir þar sem má sjá það sem virðist vera nál eða járnstykki inni í Mikly Way súkkulaðistykki.
Þá staðfesti María að það sé sama mál og hún hafi fengið veður af en að enginn hafi slasast með því að bíta í það stykki. Þau hjá lögreglunni muni senda út tilkynningu á Facebook-síðu sinni innan skamms til að vara við nálunum og að málið væri í rannsókn.
Fréttin er í vinnslu.