Sjö starfsmenn sem sagt var upp í sumar eru komnir aftur til starfa hjá Reykjavíkurborg. Stöðugildum hefur verið fækkað um um það bil 130 frá því að nýr meirihluti tók við og talið að skorið hafi verið niður um 2,5 milljarða á ársgrundvelli.
Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður hagræðingarhóps, segir að fyrir þessa peninga væri hægt að eyða biðlistum í leikskólana eða bæta við 80–100 búsetuúrræðum fyrir fatlaða.
„Eða þá gætum við sett þessa peninga í að stórbæta viðhald og fjárfestingar í eignum. Þetta er það sem við erum að horfa á. Við verðum að grípa til aðgerða þegar staðan er komin upp ekki bíða of lengi. Sum sveitarfélög hafa beðið of lengi.“
Róbert var til viðtals í Vikulokunum í morgun. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB var þar einnig.
Sonja Ýr er gagnrýnin á þá hugmyndafræði sem liggur að baki aðgerðunum. Henni finnst hún byggja á því að tala niður opinbera starfsmenn og þjónustu.
„Á móti þegar maður dregur upp myndina af því hverjir eru að sinna þessum störfum þá eru þetta ómissandi störf fyrir samfélagið. Þetta er það sem byggir undir velferð, öryggi og félagslega samheldni. [Það er] líka svolítið eins og það sé samfélagslegur sáttmáli um að framlínufólk sé mikilvægt en allir aðrir séu bara óþekkti embættismaðurinn.“
Hún segir að framlínustörfin gangi ekki fyrir sig án sterkrar stoðþjónustu.
Ósammála um endurráðningar
Sonja segir vísbendingar um að uppsagnirnar hafi verið illa undirbúnar og vísar til þess að nokkrir hafi fengið störf aftur.
Róbert og Sonju greinir á um hvort þeir starfsmenn hafi fengið sín eigin störf aftur.
Róbert segir að fólkið hafi annaðhvort fengið tímabundnar ráðningar eða sótt um ný störf.
Sonja segir þetta hins vegar ekki rétt og vísar til svara frá mannauðssviði borgarinnar. „Þar kemur mjög skýrt fram í svari mannauðssviðs borgarinnar að sjö hafi verið boðið starf aftur, sitt starf aftur,“ segir hún.