Íslendingar sem aðrir geta haft áhrif á gengi mynda í opinni kosningu. Hér má kjósa.
Í Tímanum og vatninu eltist Andri Snær við eitthvað óáþreifanlegt. Þegar jöklarnir bráðna og minningar glatast, þegar afar og ömmur eldast og deyja, tekur hann saman tímahylki til að varðveita það sem hann elskar mest - og sendir framtíðinni. Andri Snær notar ljósmynda- og kvikmyndasafn afa síns, eigin upptökur og gamlar þjóðsögur til að vefa mynd sem er í senn fjölskyldusaga og saga um náttúru á hverfandi hveli.
Leikstjóri er Sara Dosa, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir Fire of Love árið 2022. Tíminn og vatnið var frumsýnd á Sundance-hátíðinni en var frumsýnd á Íslandi í ágúst. Hún hefur hlotið lof gagnrýnenda bæði hér heima og erlendis.
Alls eru sautján myndir á listanum sem verður skorinn niður í tíu.
- The AI Doc: Or How I Became an Apocaloptimist, eftir Daniel Roher og Charlie Tyrell
- American Doctor, eftir Poh Si Teng
- Ask E. Jean, eftir Ivy Meeropol, um E. Jean Carroll
- The Bend in the River, eftir Robb Moss
- Cookie Queens, eftir Alysa Nahmias
- The Cycle of Love, eftir Orlando von Einsiedel
- Everest: The Other Side, eftir Jimmy Chin og Elizabeth Chai Vasarhelyi
- Everybody to Kenmure Street, eftir Felipe Bustos Sierra
- Give Me the Ball, eftir Liz Garbus og Elizabeth Wolff, um Billie Jean King
- The History of Concrete, eftir John Wilson
- NAZA, eftir Yuval Abraham og Rachel Szor
- The Oldest Person in the World, eftir Sam Green
- Once Upon a Time in Harlem, eftir William Greaves og David Greaves
- Steal This Story, Please!, eftir Carl Deal og Tia Lessin
- Time and Water (Tíminn og vatnið), eftir Söru Dosa
- Wild Inside, eftir Penny Lane
-
You Can See Everything, eftir Nathan Fielder og Lance Oppenheim, um Elizabeth Holmes
Þekktasta myndin á listanum er líklega You Can See Everything. Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehearsal.
Í myndinni fylgir hann eftir svikahrappnum Elizabeth Holmes áður en hún fer í fangelsi vegna svika hennar við fjárfesta í Theranos-skandalnum svokallaða. Fyrirtækið sérhæfði sig í meintri byltingarkenndri tækni við blóðprufur.
Tilnefningar í flokki kvikmynda í fullri lengd verða kynntar 12. nóvember. Verðlaunin verða afhent á Cinema Eye Honors-hátíðinni í New York þann 11. janúar á næsta ári
Cinema Eye Honors eru bandarísk verðlaun fyrir heimildarmyndir og oft rædd í samhengi við Óskarsverðlaunin þó engin formleg tengsl séu þar á milli. Verðlaunin þykja hins vegar góður mælikvarði á gengi myndanna. Má nefna að síðustu átta Óskarsverðlaunamyndir í flokki heimildarmynda voru allar á lista Cinema Eye í flokki áhorfendaverðlaunanna.
Í fyrra voru átta af sextán myndum á listanum valdar á stuttlista Óskarsins og fjórar af þeim fimm sem hlutu tilnefningu, þar á meðal sigurmyndin Mr. Nobody Against Putin.
Listinn getur því veitt vísbendingar um hvaða myndir gætu verið tilnefndar eða unnið til verðlauna á Óskarnum.