Trúnaðarmaður Síðuskóla vill ekki alls konar kennara

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Færsla sem Hulda Guðný Jónsdóttir, trúnaðarmanns kennara í Síðuskóla, í tengslum við Morgunblaðsgreinina sem kom út, er um margt athyglisvert.
Hulda Guðný deilir þar tilfinningarúnki Ólafs Hauks Tómassonar, samkennara, sem fór mikinn í að tala um transfóbískan kennara og áhrif skrifa á skólann, en höfundur greinarinnar, sem er kennari, spyr eðlegra spurningar um veru hagsmuna- og baráttusamtaka inn í skólum landsins. Kunn klysja sem Ólafur flytur þarna.
Þegar lífsviðurværið er ekki lengur í hættu liðkast málbeinið.
Virðist ekki átta sig á að kennarar eru alls konar
Eins og sjá má á skjáskotinu talar Hulda um „alls konar nemendur“, en tók þátt í múgsefnjun og vill skikka kennara, jafnvel reka, þá sem hafa aðra skoðun en hjörðin sem hún virðist telja hafa „hina einu réttu skoðun.“
Kennarara í Síðuskóla mega ekki vera alls konar, þeir eiga að vera einsleitnir og með sömu skoðun sem Hulda Guðný og fleiri vilja ákveða hver er.
Hjörð innan Síðuskóla lét mynda sig saman trans hugmyndafræðinni til heiðurs sem nú fellur í áliti eins og lauf af tré að hausti. Margir undrast slíka hegðun kennara.
Þekking umræddra kennara í Síðuskóla, allavega á þessum tíma, virðist lítil þegar kemur að trans hugmyndafræðinni. Margir láta duga messuorð Samtaka 78 um hugmyndafræðina og halda að þar fari hinn heilagi sannleikur. Að sjálfsögðu er það ekki raunin, hefur ekki verið og er ekki enn í dag. Meira að segja kom deildarstjóri í Síðuskóla upp um vanþekkingu sína.
Trúnaðarmaður, það er alvarlegt
Hulda Guðný trúnaðarmaður kennara tekur undir orð samkenna síns án gagnrýnnar hugsunar. Hún sinnti einhverfum börnum í sérdeildinni til margra ára og ætti því að vita að þau börn eru sérstaklega viðkvæm þegar kemur að ,,heilaþvotti“ ef svo má orða það.
Einhverf börn verða oftar en ekki fyrir barðinu á trans hugmyndafræðinni og það þarf ekki að fletta lengi á netinu til að fræðast um það. En nei, Hulda Guðný vildi frekar vera með í hjarðhegðun kennara Síðuskóla í stað þess að standa upp fyrir einhverfum börnum, sannleikanum og heilbrigðri skynsemi.
Trúnaðarmaður sem bregst kennara á ögurstund er ekki hæfur trúnaðarmaður. Svona vinna sannir trúnaðarmenn ekki, aldrei. Þeir halda alltaf hluleysi sínu í álitamálefnum innan skólans, einmitt til að geta verið til staðar. Skiptir þá engu hvert málefnið er.
Hulda Guðný fór offörum gegn kennara sem hún átti að hjálpa þegar eineltisaðfarir í Síðuskóla hófust.
Hulda Guðný brást á tveimur vígstöðvum að mati höfundar.