Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, segir engin áform um friðarviðræður við Bandaríkin þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af því að átök brjótist út að nýju.
Araghchi sagði í viðtali við fréttastofu Al Jazeera í dag að eins og staðan er núna séu allar vangaveltur um viðræður aðeins getgátur fjölmiðla.
Við núverandi aðstæður sæi Íran enga ástæðu til að funda með Bandaríkjamönnum. Afstaða Írana væri skýr og milligönguaðilar héldu áfram samráði um skilyrði þeirra.
Araghchi staðfesti að Íran hefði fengið bréf frá JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, eftir nokkurra daga diplómatískar tilraunir til að koma í veg fyrir að átök hæfust á ný.
Segir enga sundrungu
Hann sagði að skilaboð Vance hefðu verið vandlega yfirfarin og rædd á fundum háttsettra embættismanna.
Ef markmið Bandaríkjastjórnar með því að senda skilaboðin væri að sá sundrungu innan raða Írana væri það enn ein mistökin í röð mistaka af hálfu Bandaríkjanna, sagði Araghchi.
Hann bætti þó við að tilraunir Bandaríkjamanna til að hefja viðræður og ná víðtækari skilningi væru jákvætt skref.
Khamenei heitir hörðum gagnárásum
Skömmu eftir þessa yfirlýsingu Arragchis varaði Mojtaba Khamenei, æðsti klerkur Írans, Bandaríkin og Íran við að halda árásum áfram eftir þingkosnigarnar í Bandaríkjunum í næstu viku, eins og margir hafa spáð og Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf í skyn. Árásum yrði svarað umsvifalaust og af fullum þunga.