Nýja Ölfusárbrúin er komin yfir ána. Færsla brúargólfsins gekk framar vonum því upphaflega var áætlað að það tæki allt að tíu daga að mjaka því yfir ána en það tókst á fimm dögum. Brúargólfið kom yfir ána um hádegi í dag.
Enn á eftir að draga brúargólfið um þrjátíu metra til viðbótar til að klára verkið. Það verður gert á þriðjudag að sögn forstjóra ÞG-verks.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að næstu daga verði mastrið sem hélt uppi framenda brúarinnartekið niður og stálvirkið fest við brúarstólpana.
Brúin er 330 metrar á lengd og vegur rétt um tvö þúsund tonn. Búist er við að hún verði tilbúin haustið 2028.