„Það tók ekki nema stutta stund, eða í kringum 20 mínútur, fyrir árásaraðilana að brjótast þarna inn. Það áhugaverða við þetta er að það var í rauninni ekki hakkað bitcoin sjálft eða blokkarkeðjuna heldur er talið að það hafi verið tekið yfir fartölvu starfsmanns sem var með svolítið víðar heimildir.“
Þetta segir Ingólfur Andri Ágústsson, netöryggissérfræðingur hjá OK.
Margt bendir til þess að hakkarahópur frá Norður-Kóreu hafi staðið að stuldi milljarða dala frá rafmyntakauphöllinni Binance. Hakkarahópurinn heitir TraderTraitor og er talinn vera hluti af Lazarus-hópnum sem nýtur stuðnings norðurkóreska ríkisins.
„Ástæðan fyrir því að hann liggur undir grun er af því að þeir hafa tekið þrjár aðrar stórar svona Bitcoin-árásir sem FBI [bandaríska alríkislögreglan] hefur tengt þá við en það hefur ekki endilega verið staðfest,“ segir Ingólfur.
Ingólfur segir hópinn starfa þannig að þeir finni skotmörk með því að nýta sér mannlega þáttinn.
„Byggja upp eitthvað traust og dreifa svo spilliforritum til að komast inn á aðganga hjá einmitt svona aðilum. Þess vegna út frá fyrstu fréttum að þetta hafi verið í gegnum aðgang hjá starfsmanni þá liggja þeir undir grun.“
Áhrif á um 780 milljarða íslenskra króna
Binance er stærsta rafmyntakauphöll heims og varð fyrir umfangsmikilli og flókinni tölvuárás á dögunum. Árásin hafði áhrif á um 780 milljarða íslenskra króna. Helmingur þeirrar upphæðar, um þrír milljarðar dala, var frystur til að koma í veg fyrir frekari þjófnað.
Upphæðin sem var stolið er fjórfalt hærri en í stærstu tölvuárás fram að þessu. TraderTraitor er einnig talinn hafa staðið að þeirri árás, þjófnaði 1,5 milljarðs Bandaríkjadollara frá rafmyntakauphöllinni Bybit í fyrra.
Sérfræðingar hafa ásakað stjórnvöld í Norður-Kóreu um að fjármagna ríkisreksturinn með netglæpum.
Upphæðin sem hópar innan Norður-Kóreu hafa stolið með netglæpum hefur farið snarhækkandi síðustu ár. Alríkislögregla Bandaríkjanna hefur tekið innbrotið til rannsóknar.