Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er á leið í Breiðholt vegna tilkynningar um eld í íbúðarhúsi. Samkvæmt fyrstu tilkynningu virðist eldurinn vera utandyra en slökkvilið er á leið á vettvang.
Varðstjóri slökkviliðsins segir að allt tiltækt lið sé ræst út þegar tilkynning berist um eld í íbúðarhúsi.
Fréttin verður uppfærð með nánari upplýsingum þegar þær berast.