Mjódd via Höfðatorg: Tækifærið er núna
Hægt og hægt hættir það að skipta okkur máli hvort manneskjan sé til, hvort tungumálið sé lifandi eða hvort vagninn fari um Höfðatorg á leiðinni í Mjódd.
Fyrir tuttugu og tveimur árum bjó bandarískt incel til þjónustu til þess að gefa skólasystrum sínum einkunnir eftir því hversu heitar þær væru og um daginn póstaði hrædd, íslensk kona mynd á einn afkima þeirrar síðu af ungum, brúnum manni í strætó að öskra á vagnstjórann, sem virðist vera oddviti Miðflokksmanna í Reykjavík á meðan hópur saklausra hvítra farþega situr stjarfur af ótta. Á skilti í vagninum stendur Mjódd – via Höfðatorg. Hún spyr hvort einhver viti í hvaða vagni þessi ljósmynd hafi verið tekin. Sennilega vill hún forðast þann vagn enda síður huggulegt að horfa á menn öskrandi og hótandi. Vagninn er að sjálfsögðu ekki til. Myndin er fölsk. Tækifærin eru endalaus. Sá sem falsaði myndina hefur gefið bandarísku stórfyrirtæki aðgang að vafrakökum sínum til þess að þjálfa gervigreindarverkfærið og í hvert sinn sem henni er deilt eykst umferð um vefsíðu incelsins. Við hvort tveggja eykst hagnaður erlendra hluthafa. Við hvort tveggja versnar allt aðeins.
Tækifærið er núna. Á dögunum sleit stærsta sjálfstæða sjónvarpsstöð landsins viðskiptasambandi sínu við alla verktaka sína í þýðingum. Í þeirra stað ætlar sjónvarpsstöðin að notast við gervigreind við þýðingar. Nýjustu tækni, eins og gaur sem hefur atvinnu af óheiðarleika sagði fjölmiðlum í sömu andrá og hann þvertók fyrir að þýðendum hafi verið sagt upp, sennilega eftir fokdýran fund með hópi almannatengla. Auðvitað notast fyrirtækið við nýjustu tækni í allri sinni vinnu. Þannig hámarkast hagnaður hluthafa. Þýðingarnar versna, vægi tungumálsins minnkar, en við viljum ekki vera skilin eftir í fortíðinni.
Smáforrit sem hannað er til þess að safna upplýsingum um hundruð milljóna með því að sýna þeim skemmtilega dansinn sem þau vilja sjá eða heitu gelluna eða gaurinn sem þau vilja ríða eða uppskriftina sem þau nenna ekki að elda, sýnir mér uppistandara í sölum sem ég gæti ekki fyllt. Það versnar allt aðeins. Ég þekki brandarana en alls ekki uppistandarana. Einhvers staðar í þriðja heiminum situr gaur við tölvu og slær fyrirmæli inn í gervigreindarforrit. Hann skáldar upp persónu sem segir brandara sem hann sá alvöru manneskju segja fyrr þann sama dag. Njósnaforritið borgar honum einhverjar krónur, umferð eykst og hluthafar fagna. Hægt og hægt hættir það að skipta okkur máli hvort manneskjan sé til, hvort tungumálið sé lifandi eða hvort vagninn fari um Höfðatorg á leiðinni í Mjódd. Allt versnar aðeins og síðan versnar það mikið. Tækifærið er samt núna og við megum ekki heltast úr lestinni. Tækifærin eru endalaus. Þau minna okkur á það; þau fáu njóta góðs af tækifærunum.