Betur fór en á horfðist þegar ungur ökumaður ók á ljósastaur í Bolungarvík á miðvikudagskvöld. Talið er að hann hafi verið á 110 kílómetra hraða á klukkustund þegar áreksturinn varð þar sem hámarkshraði er 50.
Í tilkynningu Lögreglunnar á Vestfjörðum segir að ökumaðurinn hafi hlotið minniháttar áverka. Bifreiðin var óökufær og ljósastaurinn ónýtur.
Ökumanninum var gerð sekt að fjárhæð 170 þúsund krónum og hann sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði. Hann þarf einnig að sækja sérstakt námskeið áður en hann getur óskað eftir að öðlast ökuréttindi á ný því hann var nýkominn með ökuréttindi.
„Lögreglan hvetur alla ökumenn, óreynda sem reynda að haga akstri í samræmi við umferðarlög og aðstæður en þannig tryggjum við best umferðaröryggi,“ segir í tilkynningu lögreglu.