Kaupþyrstir Íslendingar keyptu upp lagerinn af Levi's 501 í Edinborg

Kaupþyrstir Íslendingar keyptu upp lagerinn af Levi's 501 í Edinborg

Kaupþyrstir Íslendingar keyptu upp lagerinn af Levi's 501 í Edinborg

Helgarferðir út fyrir landsteinana í þeim tilgangi að fara í búðir voru mjög vinsælar í lok níunda áratugar síðustu aldar og byrjun þess tíunda. Heilsíðuauglýsingar um slíkar ferðir voru birtar í blöðum og nutu ferðir til Dyflinnar, Edinborgar og Glasgow sérlegra vinsælda.

Austfirðingar streymdu í ferðir til Glasgow með beinu flugi frá Egilsstöðum og nokkrir þeirra voru teknir tali í fréttum í nóvember 1986. Einn sagðist telja að sennilega hefði helmingur þeirra sem fóru látið það vera ef ekki væri fyrir beint flug á áfangastað.

Í sjónvarpsþættinum Í takt við tímann var um svipað leyti greint frá áhrifum af umfjöllun í þættinum um verslunarferðirnar í vikunni á undan. Tollleit á Keflavíkurflugvelli hefði verið snaraukin daginn eftir þáttinn og fólk spurt hvort það væri með nýjan fatnað í farangrinum. Á tiltölulega skömmum tíma hafi um 100 manns verið tekin með umframfatnað, sektuð og fatnaðurinn verið gerður upptækur.

Farangur eitt tonn á leiðinni út – fjögur tonn á leiðinni heim

Kristín Þorsteinsdóttir fjallaði um verslunarferðir Íslendinga til Edinborgar í Kastljósi í lok nóvember 1991. Í innslaginu slóst hún í för með um 500 Íslendingum til borgarinnar.

Vinsældir slíkra ferða voru sagðar hafa aukist frá fyrra ári. Fram kemur í þættinum að um 30 prósentum fleiri Íslendingar hefðu farið til útlanda en á sama tíma 1990. Tugir tonna af vörum hafi verið keyptir í ferðunum og um tíu milljónir króna greiddar fyrir umframvarning. Greiða þurfti toll af innkaupum yfir 24 þúsund krónum.

Fáir vildu láta mynda sig í verslunarferðinni sem Kristín fjallaði um í Kastljósi 1991 vegna þess að búið væri að innprenta í það að verslunarferðir til útlanda væru svik við land og þjóð.

Það er ekki fjarstæðukenndur ótti vegna þess að í þættinum Í takt við tímann árið 1986 var sagt frá því að kona ein, sem hafði verið rætt við í þættinum vikuna á undan, hefði orðið fyrir aðkasti og skrifuð hefður verið um hana lesendabréf í Dagblaðið.

Nokkrir létu þó tilleiðast og systurnar Brynhildur og Sigríður Valdórsdætur greindu Kristínu frá því að þær hefðu keypt jólagjafir og fleira og fengið meira fyrir peninginn en heima á Íslandi.

Klemens Júlíusson og Halldóra Hauksdóttir voru einnig alsæl með sín kaup. Hann bjóst við að þau myndu verja um 100 þúsund krónum í borginni þegar allt væri talið. Það er nærri 440 þúsund krónur á núvirði.

Starfsfólk í verslun og þjónustu fagnar kaupgleði Íslendinga

Bill Gardner, sem titlaður er aðstoðarmaður í þættinum, sagði Íslendinga kaupa svo mikið að hann velti því fyrir sér hvort flugvélin kæmist á loft þegar heim yrði haldið. Og skyldi engan undra því fram kom að á leiðinni út hefði farangur farþeganna verið mun léttari en á leiðinni heim. Þyngdin hefði farið úr rúmu einu tonni í fjögur auk handfarangurs.

Levi's 501 gallabuxur voru sérstaklega vinsælar á Íslandi á þessum tíma, svo mjög að eftir var tekið í Edinborg.

Lynne Killin, verslunarstjóri í Levi's verslun í borginni, sagði Íslendinga stóran hluta kaupenda. Þeir keyptu ekki bara einar buxur heldur sex til sjö.

„Ég veit ekki hvers vegna snið 501 er svona vinsælt hjá þeim en þeir hafa nærri keypt upp lagerinn.“ Killin sagðist verða að panta meira en bjóst jafnframt við að Íslendingar yrðu búnir að kaupa birgðirnar upp innan örfárra daga.

Íslendingar bjarga jólum írskra kaupmanna

Í desember 1992 voru kaupmenn í Dyflinni farnir að bjóða Íslendinga velkomna með áletrunum og skiltum á næstum því íslensku.

Christopher McKewitt blaðamaður hjá Sunday Tribune var nýkominn aftur heim til Írlands eftir nokkurra daga heimsókn til Reykjavíkur þegar rætt var við hann í fréttum sjónvarps í desember 1992. Hann sagði að niðursveifla hefði komið illa niður á írskum kaupmönnum en Íslendingar í verslunarferðum ættu líklega eftir að bjarga jólavertíðinni í Dublin.

Kaupmenn í Reykjavík hefðu eflaust ástæðu til að vera ósáttir. Þeir hefðu talað um að þeir þyrftu að borga háa tolla fyrir innflutning á til dæmis fatnaði og leikföngum, sem fólk þyrfti ekki að greiða við komuna heim úr verslunarferð. McKewitt sagði þó jafnframt að svo virtist sem álagningin á Íslandi væri hærri en hún ætti að vera og þannig hefði það verið um tíma.

Lilian Hamilton, verslunareigandi í Dublin, taldi að fatakaup Íslendinga skiluðu um 20 prósentum af tekjum verslunarinnar í desember.

Sharon O'Keafe, afgreiðslumaður í versluninni Levi's í Dublin, sagði í viðtali að minna væri um Íslendinga í verslunum borgarinnar en árið áður. Hún rakti það til aðgerða íslenskra stjórnvalda sem hefðu reynt að stemma stigu við verslunarferðum til útlanda.

Íslenskir kaupmenn áhyggjufullir

Á Íslandi höfðu kaupmenn áhyggjur af verslunarferðunum og sögðu störf í verslun hér á landi í húfi.

Bjarni Finnsson, þáverandi formaður Kaupmannasamtakanna, sagði í Kastljósi að sjálfsagt væru margar ástæður fyrir verðmun milli landa. Spurður hvort eitthvað væri að í álagningunni hér á landi sagðist Bjarni telja að þar sem samkeppni væri virk væri ekki verulegur munur nema „þá sem nemur þeim mismun á sköttum og því sem óhjákvæmilega gerir verðið hærra hér á landi“. Í því samhengi nefndi hann ýmsa sérskatta eins og sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði sem hann sagði einsdæmi hér á landi. Fleira væri sérskattað eða meira skattað í þessari atvinnugrein en í nágrannalöndunum.

Elías Guðnason, verslunarmaður á Austfjörðum, sagði í sjónvarpsfréttum í desember 1993 að til þess að halda úti verslunum á Austurlandi eða annars staðar á landinu þá gangi það aldrei upp ef fólk fari til útlanda í stórum hópum, sérstaklega frá litlum stöðum.

Meiri viðbúnaður fyrir stóra hópa Íslendinga

Tollverðir í Keflavík skoðuðu farangur vel og Gottskálk Ólafsson, þáverandi yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli, sagði að heldur meiri viðbúnaður væri þegar margir Íslendingar væru að koma til landsins. Þeir væru yfirleitt með meiri farangur en erlendir ferðamenn og um þá giltu aðrar reglur. Nokkuð hefði verið um að tollverðir þyrftu að hafa afskipti af Íslendingum í tollhliðunum.

#kaupþyrstir #keyptu #lagerinn #upp #íslendingar


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-31-kaupthyrstir-islendingar-keyptu-upp-lagerinn-af-levis-501-i-edinborg-491303

📰 Aðrar fréttir

Vendingar í fjölskyldudrama Osbourne-fjölskyldunnar
📅 01.11.2026 👁️ 1
Vendingar í fjölskyldudrama Osbourne-fjölskyldunnar
Osbourne-fjölskyldan er í sárum eftir að fjölskyldufaðirinn, Ozzy Osbourne, lést í fyrra en líka sökum þess að börnum rokkarans og eiginkonu hans, Sha...
Meinti eltihrellirinn Íris Helga svarar til saka í vikunni - Þetta er hún sökuð um
📅 01.11.2026 👁️ 1
Meinti eltihrellirinn Íris Helga svarar til saka í vikunni - Þetta er hún sökuð um
Aðalmeðferð hefst á morgun í máli lögreglustjórans á Suðurnesjum gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur, en málið verður rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Í...
Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 1
Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts - Vísir
Ekki liggur fyrir hvort dómari hafi samþykkt varðhald yfir manninum að svo stöddu. Maðurinn var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur á níunda tímanum í...
Starfs­menn Disney World hand­teknir í stóru barnaníðsmáli - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 1
Starfs­menn Disney World hand­teknir í stóru barnaníðsmáli - Vísir
Grady Judd lögreglustjóri í Polk-sýslu greindi frá því á blaðamannafundi í gær, samkvæmt umfjöllun CBS, að lögregluaðgerðin hefði staðið yfir í sjö da...
Vísuðu lögreglu á hnífinn
📅 01.11.2026 👁️ 1
Vísuðu lögreglu á hnífinn
Lögregla hefur lagt hald á hníf sem hún telur að hafi verið beitt í árás í Breiðholti í nótt. Einn lést af áverkum sínum eftir árásina og annar er á g...
Nær „kommúnistabjáninn James Talaskrípó“ Texas?
📅 01.11.2026 👁️ 1
Nær „kommúnistabjáninn James Talaskrípó“ Texas?
Slagurinn um öldungardeildarsætið í Texas-ríki gæti orðið einn sá mest spennandi í þingkosningunum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Demókratar hafa ekki á...
Yfirhalning hafi verið nauð­syn­leg - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 1
Yfirhalning hafi verið nauð­syn­leg - Vísir
„Ég er viss um það að dómstóllinn muni starfa eins og honum er skylt. Einnig óháð mér og í samræmi við stjórnarskrána,“ sagði Tusk í sjónvarpsávarpi í...
50+: Sjúkdómasamkeppnin í matar­boðinu - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 1
50+: Sjúkdómasamkeppnin í matar­boðinu - Vísir
Vinahópurinn þekkist vel – það er alltaf mikið hlegið og gaman þegar þessi hópur hittist. Ferðalög, helstu fréttir og pólitík og umræður um nýjustu þæ...
Göngu­stígar greiða leið um falda perlu við Stykkis­hólm - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 1
Göngu­stígar greiða leið um falda perlu við Stykkis­hólm - Vísir
„Þetta er falin perla og vonandi að fleiri uppgötvi hana,“ segir Björn Sumarliðason, formaður Skógræktarfélags Stykkishólms og forseti bæjarstjórnar. ...
Russian strikes cut power to thousands in Ukraine as Kherson ceasefire to end
📅 01.11.2026 👁️ 1
Russian strikes cut power to thousands in Ukraine as Kherson ceasefire to end
A rare humanitarian ceasefire has allowed civilians to evacuate the Russian-occupied city of Oleshky.
Russian strikes cut power to thousands in Ukraine as Kherson ceasefire expires
📅 01.11.2026 👁️ 1
Russian strikes cut power to thousands in Ukraine as Kherson ceasefire expires
A rare humanitarian ceasefire allowed civilians to evacuate the Russian-occupied city of Oleshky.
Vilja ríkið að borðinu í eftirliti með skeldýrarækt
📅 01.11.2026 👁️ 2
Vilja ríkið að borðinu í eftirliti með skeldýrarækt
Aðeins eitt fyrirtæki ræktar krækling en minnst tvö gætu hafið störf á skömmum tíma ef lagaramminn væri endurskoðaður, segir sveitarstjóri Reykhólahre...
Íslenskur íþróttamaður féll á lyfjaprófi vegna peptíða
📅 01.11.2026 👁️ 1
Íslenskur íþróttamaður féll á lyfjaprófi vegna peptíða
Notkun ólöglegra peptíða hefur færst í aukana síðustu misseri. Sérfræðingar segja ómögulegt að vita hvað er í efnunum sem seld eru á svörtum mörkuðum ...
Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 1
Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves - Vísir
Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu og skipuleggjandi hátíðarinnar, segir mikla spennu í loftinu. Undirbúningur stendur nú sem hæst og mikið v...
Rannsaka tengsl milli gerenda og þolenda í Breiðholtsmálinu
📅 01.11.2026 👁️ 1
Rannsaka tengsl milli gerenda og þolenda í Breiðholtsmálinu
Einn er látinn og einn liggur alvarlega særður á gjörgæslu eftir að til átaka kom í Breiðholtinu í nótt. Fram hefur komið í fréttum í dag að þrír séu ...
Matarpöntunum fækkaði eftir verðhækkunina í september
📅 01.11.2026 👁️ 1
Matarpöntunum fækkaði eftir verðhækkunina í september
Færri nýttu sér matarþjónustu Reykjavíkurborgar í haust í samanburði við sama tíma í fyrra. Verð máltíðanna var hækkað um allt að 72% í september.Velf...
Peaceful protests in Germany spiral into violence and looting
📅 01.11.2026 👁️ 1
Peaceful protests in Germany spiral into violence and looting
Thousands joined largely orderly demonstrations earlier in the day, before violence erupted in Frankfurt, Berlin, Cologne and Hamburg.
Hreyfing mælist í Svínfellsheiði
📅 01.11.2026 👁️ 1
Hreyfing mælist í Svínfellsheiði
Hreyfingar hafa mælst í hlíðinni ofan við austanverðan Svínafellsjökul í Öræfum en það er í fyrsta sinn síðan vöktun var komið þar upp árið 2018 sem h...
Eigendur Glyms mótmæla áformum um hótel og baðlón
📅 01.11.2026 👁️ 1
Eigendur Glyms mótmæla áformum um hótel og baðlón
Landeigendum í Stóra-Botni í Hvalfjarðarsveit hugnast ekki áform eins landeiganda í Litla-Botni sem vill byggja stórt hótel og baðlón. Nágrannar hans ...
Lögreglan varaði við nálum sem fundust í nammi á Akureyri - Reyndist vera hrekkur
📅 01.11.2026 👁️ 1
Lögreglan varaði við nálum sem fundust í nammi á Akureyri - Reyndist vera hrekkur
Lögreglan á Norðurlandi sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag eftir að þeim barst ábending um að aðskotahlutir hefðu fundist í sælgæti sem var dreift í...
Þekkt fyrir­tæki nýtt í skipu­lagðri glæpa­starf­semi - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 2
Þekkt fyrir­tæki nýtt í skipu­lagðri glæpa­starf­semi - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Fram hefur komið að á meðal handteknu í málinu er framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL sem var í framhaldinu settur...
Sigrarnir mótast af baklandinu
📅 01.11.2026 👁️ 1
Sigrarnir mótast af baklandinu
Sigrarnir mótast af baklandinu Árni Már Þ. Við­ars­son mynd­list­ar­maður „Það sem hefur mótað mig fyrst og fremst í líf­inu er ein­hver prakk­ara­ska...
Sydney armed police start street patrols after Bondi Beach attack
📅 01.11.2026 👁️ 1
Sydney armed police start street patrols after Bondi Beach attack
The new police unit is a security measure in response to last year's deadly shooting attack at a Hanukkah festival.
Lindsay Clancy will reappear in court - but will her case be retried?
📅 01.11.2026 👁️ 1
Lindsay Clancy will reappear in court - but will her case be retried?
The Massachusetts mother, accused of murdering her three children, is expected back in court as she awaits a decision on whether her case will be retr...
Hull adventurer Karl Bushby 'overwhelmed' at Humber Bridge crowds
📅 01.11.2026 👁️ 1
Hull adventurer Karl Bushby 'overwhelmed' at Humber Bridge crowds
The British adventurer is due to complete his 31,000-mile challenge in Hull on Monday.
Snorri Másson: 230 milljónir í utanríkisráðuneytið en ekkert fé í löggæsluáætlunina
📅 01.11.2026 👁️ 2
Snorri Másson: 230 milljónir í utanríkisráðuneytið en ekkert fé í löggæsluáætlunina
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að fjármagna ekki nýja löggæsluáætlun á sama tíma og fé renni til utanríkisráðun...
Kryddsíldin fagnar fjöru­tíu ára af­mæli - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 3
Kryddsíldin fagnar fjöru­tíu ára af­mæli - Vísir
Eftir að kvöldfréttir Sýnar voru sagðar í síðasta sinn þann 31. ágúst hafa verið uppi vangaveltur um framtíð Kryddsíldar. Aldrei stóð til að gera nokk...
Tengsl séu milli ger­enda og fórnar­lambsins í Breið­holti - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 3
Tengsl séu milli ger­enda og fórnar­lambsins í Breið­holti - Vísir
Þrír eru í haldi lögreglu vegna málsins en þeir eru allir íslenskir líkt og maðurinn sem lést en hann var á fertugsaldri. Þá er annar á sjúkrahúsi alv...
Skoða tengsl milli ger­enda og fórnar­lambsins í Breið­holti - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 2
Skoða tengsl milli ger­enda og fórnar­lambsins í Breið­holti - Vísir
Þrír eru í haldi lögreglu vegna málsins en þeir eru allir íslenskir líkt og maðurinn sem lést en hann var á fertugsaldri. Þá er annar á sjúkrahúsi alv...
Thousands of jobs at Virgin Media O2 to be cut
📅 01.11.2026 👁️ 2
Thousands of jobs at Virgin Media O2 to be cut
The broadband provider has not finalised the number of roles to be axed but it will likely be a sizeable chunk of its workforce, the BBC understands.
Teide summit closed to hikers due to snow
📅 01.11.2026 👁️ 3
Teide summit closed to hikers due to snow
Access to the summit of Mount Teide has been restricted after snow fell around the Pico del Teide and Altavista refuge during today’s storm.The Teneri...
Storm knocks out power to 160,000 homes and triggers 50 emergency call-outs in Tenerife
📅 01.11.2026 👁️ 3
Storm knocks out power to 160,000 homes and triggers 50 emergency call-outs in Tenerife
A storm cut electricity to around 160,000 homes across Tenerife earlier this Sunday morning, as emergency crews responded to nearly 50 weather-related...
Israeli strikes in Gaza kill eight including child, hospitals say
📅 01.11.2026 👁️ 1
Israeli strikes in Gaza kill eight including child, hospitals say
Five officers from the Hamas-run police have been killed in Khan Younis and three people, including a child, killed in Gaza City, officials say.
Útspil leikara þykir benda til þess að næsti James Bond sé fundinn
📅 01.11.2026 👁️ 2
Útspil leikara þykir benda til þess að næsti James Bond sé fundinn
Er næsti James Bond fundinn? Þessu velta margir fyrir sér eftir að þau tíðindi bárust að leikarinn Callum Turner hefði sagt af sér sem forstjóri kvikm...
Björn Jón skrifar: Þjóðfélagsumræða bjöguð af rétthugsun
📅 01.11.2026 👁️ 3
Björn Jón skrifar: Þjóðfélagsumræða bjöguð af rétthugsun
Mynd Á dögunum gerði ég hér að umtalsefni vanheilagt bandalag Vinstrisins (eða
Lögreglan varar foreldra við – Nálar fundust í hrekkjavökunammi á Akureyri
📅 01.11.2026 👁️ 3
Lögreglan varar foreldra við – Nálar fundust í hrekkjavökunammi á Akureyri
Lögreglan á Norðurlandi hefur sent frá sér tilkynningu eftir að þeim barst ábending um að aðskotahlutir hefðu fundist í sælgæti sem var dreift í gærkv...
Feðgar í haldi vegna stunguárásarinnar í Breiðholti
📅 01.11.2026 👁️ 3
Feðgar í haldi vegna stunguárásarinnar í Breiðholti
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri og faðir hans eru meðal þeirra þriggja sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á stunguárás í Breiðholti í nótt. ...
Henry Nowak: Southampton student’s family on police footage
📅 01.11.2026 👁️ 3
Henry Nowak: Southampton student’s family on police footage
His family describe the night police told them of his death, and watching him being handcuffed.
Strætó hefur aldrei verið verri
📅 01.11.2026 👁️ 1
Strætó hefur aldrei verið verri
Strætó hefur aldrei verið verri Mynd: Víkingur Hóflega metið ætla ég að 95% allra ferða minna í og úr vinnu eða skóla undanfarin 22 ár hafi ég farið f...
Feðgar meðal þriggja í haldi vegna andláts í Breiðholti, herma heimildir RÚV
📅 01.11.2026 👁️ 3
Feðgar meðal þriggja í haldi vegna andláts í Breiðholti, herma heimildir RÚV
Íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans eru á meðal þriggja manna sem eru í haldi lögreglu vegna andláts í Breiðholti í nótt, samkvæmt heimildum ...
Feðgar verið hand­teknir í tengslum við rann­sókn á mann­drápi - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 3
Feðgar verið hand­teknir í tengslum við rann­sókn á mann­drápi - Vísir
Að sögn RÚV er sonurinn á fertugsaldri og faðirinn tæplega sextugur en ekki liggi fyrir hver aðkoma hins síðarnefnda var. Feðgarnir séu báðir með áver...
Rannsaka bensínsprengjuárás sem tilraun til manndráps
📅 01.11.2026 👁️ 3
Rannsaka bensínsprengjuárás sem tilraun til manndráps
Franskur lögreglumaður brenndist illa þegar bensínsprengju var kastað að honum í mótmælum í París í gær. Sprengjan sprakk við fætur mannsins og læstis...
Aðskotahlutir í hrekkjavökunammi „misheppnaður hrekkur innan lokaðs hóps“
📅 01.11.2026 👁️ 3
Aðskotahlutir í hrekkjavökunammi „misheppnaður hrekkur innan lokaðs hóps“
Uppfært kl 15:33:Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur uppfært tilmæli sín um að grandskoða sælgæti sem börn á Akureyri fengu gefins á hrekkjavöku. Til...
Arnar Sverrisson: Kvenfrelsunargeðveiki og úrkynjun
📅 01.11.2026 👁️ 2
Arnar Sverrisson: Kvenfrelsunargeðveiki og úrkynjun
Arnar Sverrisson skrifar: Í bók sinni, „Kvenfrelsari á röngunni í stjórnmálunum: Um að stofna hreyfingu með tæfum, brjálæðingum, lespum, undrabörnum, ...
Raunveruleikastjarna vakti reiði með hrekkjavökubúningum fjölskyldunnar
📅 01.11.2026 👁️ 2
Raunveruleikastjarna vakti reiði með hrekkjavökubúningum fjölskyldunnar
Hrekkjavakan fór fram í gær að venju þar sem margir klæddu sig í búning og skelltu sér í samkvæmi eða á stúfana eftir sælgætisgjöfum hjá nágrönnunum. ...
Fjórir ráðherrar mættu ekki í eina einustu atkvæðagreiðslu í haust
📅 01.11.2026 👁️ 3
Fjórir ráðherrar mættu ekki í eina einustu atkvæðagreiðslu í haust
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og þrír aðrir ráðherrar hafa ekki tekið þátt í einni einustu af 23 rafrænum atkvæðagreiðslum haustþingsins. Sam...
Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
📅 01.11.2026 👁️ 1
Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri Akureyri Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar mál eftir að nál fa...
Vara við nálum í hrekkjavökunammi - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 1
Vara við nálum í hrekkjavökunammi - Vísir
Þetta staðfestir María Borg Gunnars varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra en hún segir málið hafa verið tilkynnt nú á þriðja tímanum. Í færs...
Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 3
Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur - Vísir
Lögreglan á Norðurlandi eystra var með til skoðunar mál þar sem nál var talin hafa fundist í súkkulaðistykki sem var gefið í gær í tilefni hrekkjavöku...
„Rannsóknar­nefndir verða stofnaðar“ - Vísir
📅 01.11.2026 👁️ 2
„Rannsóknar­nefndir verða stofnaðar“ - Vísir
Þingkosningar eru fram undan í Bandaríkjunum á þriðjudag og er staða Demókrata í könnunum góð. Að sögn Friðjóns Friðjónssonar, borgarfulltrúa og sérfr...