Ökumaður, sem var nýkominn með fyrsta ökuskírteinið sitt, hefur verið sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði og gert að greiða 170 þúsund króna sekt eftir umferðarslys í Bolungarvík á miðvikudagskvöld.Lögreglan greinir frá því á Facebook-síðu sinni að ökumaðurinn hafi ekið Strandveg í átt að Bolungarvík á ofsahraða þegar hann missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði á ljósastaur inni í bænum.Hámarkshraði á veginum er 50 kílómetrar á klukkustund en samkvæmt mati lögreglu var bifreiðin á um 110 kílómetra hraða þegar slysið varð.
Ökuferðin endaði með ósköpum: „Aksturslag sem þetta er að sjálfsögðu dauðans alvara“