Nokkrir þjóðþekktir Spánverjar voru meðal þeirra sem létust í hinu mannskæða lestarslysi nærri bænum Urda á Spáni á miðvikudag. Þar á meðal eru fyrrverandi ráðherra, þekktur sjónvarpsfréttamaður, margverðlaunað tónskáld og ung frjálsíþróttakona sem átti framtíðina fyrir sér.Að minnsta kosti 69 manns létust þegar tvær hraðlestir rákust saman á járnbrautarlínunni milli Madríd og Andalúsíu. Hundruð særðust og hafa spænsk yfirvöld unnið að því undanfarna daga að bera kennsl á fórnarlömbin.
Þekktir Spánverjar meðal þeirra sem létust í lestarslysinu