Finnst ykkur það ekkert undarlegt?
Er þetta kannski bara varnarbúnaður – því laukurinn vill ekki láta éta sig?
Þetta er undarlegt... er léttur afþreyingarpistill á laugardögum.
Þetta er undarlegt... pistillinn er til gamans fyrir okkur venjulega fólkið.
(Of gáfaða fólkið veit hins vegar eflaust betur og meira).
Sko… smá efnafræðiskýring á mannamáli:
Í frumum lauksins liggja brennisteinssambönd og ensím hlið við hlið, en vandlega aðskilin, eins og tveir ósáttir ættingjar í fermingarveislu.
Á meðan laukurinn er heill gerist ekkert. En um leið og hnífurinn sker í hann rofna veggirnir, allir hittast og allt fer í háaloft.
Úr verður lofttegund með nafni sem enginn getur borið fram: syn-própanþíal-S-oxíð. Hún stígur upp af skurðarbrettinu og stefnir beint í augun á kokkinum. Þar ertir hún taugaendana í hornhimnunni og líkaminn gerir það eina sem honum dettur í hug: að skola. Og skola. Og skola.
Sumsé: Við förum að grenja.
Það var samt ekki fyrr en árið 2002 sem japanskir vísindamenn fundu sérstakt ensím sem ber ábyrgð á tárunum. Fyrir það fengu þeir Ig Nóbel-verðlaunin, skopverðlaun fyrir rannsóknir sem fá fólk fyrst til að hlæja og svo til að hugsa.
Í leiðinni fannst skýringin á því hvers vegna hvítlaukur grætir engan: hann hefur ekki þetta ensím.
Viltu sleppa við grátinn?
Kældu laukinn í ísskápnum áður en þú skerð hann, þá gufar efnið síður upp. Notaðu beittan hníf, því bitlaus hnífur merur fleiri frumur. Og skerðu undir eldhúsviftunni.
Eða bara gráta. Það er ódýrara en sálfræðingur.
Þetta er undarlegt... er léttur afþreyingarpistill á laugardögum.
Þetta er undarlegt... pistillinn er til gamans fyrir okkur venjulega fólkið.
(Of gáfaða fólkið veit hins vegar eflaust betur og meira).