Úkraínuher fær að kaupa Patriot-varnarflaugar sem herinn hefur vantað frá Bandaríkjunum. Hefðbundinni myndatöku á fundi utanríkisráðherra G20-ríkjanna í Atlanta var slaufað því sumir vildu ekki vera með rússneskum kollega sínum á mynd.
2,1 milljarður dollara, eða andvirði 250 milljarða íslenskra króna, það er upphæðin sem Úkraína þarf að reiða fram.
Bandaríska utanríkisráðuneytið tilkynnti viðskiptin í gær og segir að þau muni auka öryggi vinaþjóðar sem stuðli að pólitískum og efnahagslegum stöðugleika í Evrópu.
Kanada, Þýskaland, Noregur og Evrópusambandið ætla að aðstoða við greiðslu. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að afhending gæti tekið nokkur ár og biðlar til Bandaríkjanna um að liðka til og flýta ferlinu.
Vilja ekki vera á mynd með Lavrov
Utanríkisráðherrar G20-ríkjanna eru saman komnir á fundi í borginni Atlanta í Bandaríkjunum. Gestgjafinn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, opnaði fundinn sem hófst í gær og lýkur í dag.
Venju samkvæmt er alltaf tekin svokölluð fjölskyldumynd, sem er hópmynd af þeim sem mæta, en nú er búið að slaufa myndatökunni. Ástæðan er sú að hópur ráðherra vill ekki vera á mynd með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.
„Það er mikilvægt að eiga orðaskipti við fundarborðið en ómögulegt að láta eins og ekkert hafi í skorist,“ segir Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, um samskiptin við Rússland. Þess vegna vilji hann og fleiri kollegar ekki hefðbundna fjölskyldumyndatöku með Lavrov.
Fyrstu íbúar úkraínska bæjarins Oleshky í Kherson-héraði eru komnir til Belarús. Rússlandsher náði bænum á sitt vald 2022 en herti umsátur um hann í maí og fólk var farið að svelta. Í gær fengu íbúar neyðarvistir og þeir sem vildu voru fluttir í burtu, fyrst til Rússlands, þaðan til Belarús og svo til Úkraínu.