Þúsundasti íbúi Hörgársveitar segir mikla uppbyggingu og mikið líf í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið fagnaði tímamótunum með því að heiðra 1000. og 1001. íbúann. Það voru þau Kristín Björk Gunnarsdóttir og Steingrímur Karlsson, eða Denni eins og hann er kallaður. Denni segist alltaf hafa sóst í náttúru nærri byggð.
„Þetta er stutt frá Akureyri og allri þjónustu. Ég hef alltaf verið þannig; ég bjó á Austurlandi, var með óbyggðasetrið þar inni í afdölum og þegar ég bjó í Reykjavík var ég við Elliðavatn, þannig að maður svona sækir í náttúruna,“ segir Denni.
„Það eru æðislegar lóðir hérna niðri við sjóinn, við sjáum ekki næsta hús, erum hérna inni í skógi. Þannig þetta er bara frábært hverfi hérna sem er að byggjast upp.“
Denni og Kristín búa í Hagabyggð. Denni segir að íbúum fari þar ört fjölgandi og telur að fjölga muni um tugi til viðbótar í sveitarfélaginu fyrir áramót.
„Það er gaman að byggja hérna og sjá húsin rísa. Hérna ofar eru meira raðhús og þar er yngra fólk og fullt af börnum þannig að þetta á eftir að vera mjög líflegt.“
Denni segir stemninguna í sveitarfélaginu mjög góða.
„Það kom mér á óvart að þó þetta sé svona nálægt Akureyri þá er svo mikið félagslíf hérna. Allir íbúar fá frítt í sundlaugina hérna á Þelamörk. Það er kór og leikfélag og gönguhópur og mikið verið að gera saman bara eins og í sveitum sem eru lengra frá. Mér finnst gaman að því líka.“