Í gær sendi flugrekstrarstjóri Icelandair félagsmönnum FÍA tölvupóst með samningstillögum flugfélagsins í kjaradeilu flugmanna. RÚV greindi frá.
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir að samskipti eigi að fara alfarið í gegnum félagið og samninganefnd þess.
„Það er miður að við séum komin á þennan stað. Þetta er gegn reglum því samskiptin eiga að vera í gegnum FÍA. Menn vita betur en þetta,“ segir Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði félagið ekki ætla að tjá sig um málið að svo stöddu þegar fréttastofa leitaði eftir viðbrögðum hans um málið
Jón Þór segir að tugir félagsmanna hafi svarað pósti flugrekstrarstjórans á þá leið að samningsumboðið væri hjá FÍA. Félagið hefur ekki átt í samskiptum við Icelandair eftir að pósturinn var sendur. Samningaviðræðum deiluaðila hefur verið lýst sem árangurslausum en Jón Þór segir að ríkissáttasemjari muni boða til fundar sé tilefni til, enginn fundur hafi verið boðaður.
Eftir helgi ætli forsvarsmenn félagsins að funda með samninganefnd og í kjölfarið með félagsmönnum.
„Verkefnið hleypur ekki frá okkur,“ segir Jón Þór.
Kjaradeilu FÍA og Icelandair var vísað til ríkissáttasemjara í apríl. Markmiðið var að ná saman fyrir 15. september en samkomulag hefur enn ekki náðst á milli deiluaðila.