Bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti í gær tillögu forseta bæjarstjórnar um tímabundnar launalækkanir kjörinna fulltrúa.
Laun bæjarfulltrúa eiga að lækka um 50% á næsta ári en laun forseta bæjarstjórnar um 80%.
Launalækkunin á að taka gildi í upphafi næsta árs og gilda út 2027. Þá var lögð fram viðbótartillaga um aukið aðhald í rekstri. Þetta á að skila 80–100 milljóna króna afkomubata.
Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir þetta lið í því að rétta lið A-hlutans. „Þannig við verðum alltaf á grænu varðandi þessar kennitölur.“ Samstæðan í heild segir hann að sé þó í lagi.
„Þessi aðgerð snýst ekki um að rífa í einhverja handbremsu. Það er ekkert neyðarástand. Við erum að halda áfram að hagræða og finna leiðir til að ná meiri ábata úr rekstri,“ segir Jakob Björgvin.
Mánaðarlaun bæjarstjóra í Stykkishólmi eru um 2,5 milljónir á mánuði.
Þrátt fyrir að vera ekki kjörinn fulltrúi lækka laun Jakobs Björgvins um meðaltal launalækkunar bæjarfulltrúa.
Hann telur að það séu í kringum 100 þúsund krónur á mánuði.
„Ég er samt ekki búinn að reikna það niður. [...] Ég tel rétt í ljósi minnar stöðu að taka þátt í þessu verkefni með bæjarfulltrúum.“