Í vikunni greindi forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins frá því að til skoðunar væri að bjóða upp á heimsendingarþjónustu á áfengi. Einn eigenda netverslunar með áfengi sagði áformin merkileg í ljósi þess að ÁTVR hefði í sex ár kallað heimsendingarþjónustu ógn við lýðheilsu.
„En þegar ríkið vill gera það þá heitir það þjónusta og það er auðvitað þannig að vínflaskan veit ekkert hver keyrir bílinn og það skiptir auðvitað engu máli. Þannig að ÁTVR verður bara eiginlega að velja, hún getur ekki bæði verið einhvers konar lýðheilsustofnun sem skreytir sig með fjöðrum fyrir að sinna lýðheilsu þjóðarinnar og verslun sem keppir um viðskiptavini. Hún verður bara að velja þarna á milli,“ sagði Elías Blöndal Guðjónsson, einn eigenda Sante, í samtali við fréttastofu í vikunni.
Eðlilegt að þjónustan þróist
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fer með málefni ÁTVR. Hann segir áform vínbúðanna skiljanlegt skref.
„Ég held það sé eðlilegt að þessi þjónusta ríkisins þróist í takt við samfélagið. Það hefur verið að breytast mjög hratt með hvaða hætti fólk stundar sín viðskipti. Það er alveg ljóst að við getum ekki veitt þjónustu vínbúðanna alls staðar og ekki gagnvart öllum með þeim hætti sem kannski væri eðlilegt að gera kröfu um og þess vegna finnst mér raunverulega eðlilegt að við þróum þessi viðskipti með sama hætti og samfélagið þróast.“
En er það eðlilegt skref þegar lögin kveða á um að vínbúðirnar eigi að takmarka aðgengi að áfengi?
„Þetta er alltaf deiluefni því að á sama tíma og þau segja þetta þá erum við með þessa þjónustu mjög víða. Og raunar mjög víða á markaðssvæðum sem tæplega standa undir slíkum rekstri. Þannig að þarna takast á annars vegar eðlilegar kröfur samfélagsins um þjónustu og hins vegar hlutverk ríkisins við að takmarka. Það hefur þá meira verið túlkað þannig að það snúist um auglýsingabann, framsetningu á vöruúrvali og það að ríkið fari eitt með þessa sölu og að þetta sé ekki í boði utan venjulegs verslunartíma.“
En það að bjóða upp á heimsendingu, finnst þér það til þess fallið að takmarka aðgengi að áfengi?
„Þarna takast á sömu sjónarmið og takast á þegar við ræðum hvort það eigi að vera vínbúð á þessum stað eða hinum.“
Samfélagið vilji þjónustu og rekstur vínbúðanna snúist um þjónustu þó að markmiðið sé að takmarka aðgengi að áfengi. Málið snúist um það hvernig hægt sé að reka þessi tvö hlutverk með sem bestum hætti.
En þarf þá ekki bara að breyta þessum lögum?
„Það getur vel verið.“
Aðspurður hvernig honum finnist að umhverfið ætti að vera segir Daði skipta mestu máli að starfað sé innan ramma laganna. Núverandi deila fyrir dómstólum snúi að því hvort að netverslanirnar rúmist innan þeirra eða ekki. Alþingi þurfi svo að ákveða hvernig sá rammi eigi að vera.
En nú getur þú lagt fram frumvarp. Munt þú leggja til að þessi verslun verði gerð frjáls?
„Við þurfum að ráðast í endurskoðun. Þetta er málaflokkur sem er umdeildur og við þurfum þess vegna að vinna þetta í samráði innan ríkisstjórnarinnar þannig að mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu máli.“
Af því að aðrir flokkar innan ríkisstjórnarinnar eru kannski ósammála þér?
„Það eru skiptar skoðanir um þennan málaflokk.“
Daði segir að meta þurfi málin þegar hann er spurður að því hvort líkur séu á að hann muni leggja fram frumvarp í þessum efnum. Það fari líka eftir því hvernig niðurstaða verður af málum í dómkerfinu.