Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir uppsagnir hjá ríkisstofnunum vera vegna hagræðingarkröfu stjórnvalda. Hann segir þó áhyggjuefni hve hið opinbera hefur sagt mörgum upp.
„Þetta er auðvitað alltaf áhyggjuefni og sýnir að það hefur verið að hægja á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er að vísu ennþá hóflegt en við þurfum að fylgjast áfram náið með þessu.“
Fjölgun fyrst og fremst hjá sveitarfélögum
Greint hefur verið frá fækkun yfir 100 stöðugilda hjá hinu opinbera í vikunni.
Fimmtíu starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu uppsagnarbréf á þriðjudag. Frá því að nýr meirihluti tók við hefur um 130 stöðugildum verið fækkað. Í Ráðhúsi Hafnarfjarðar verða 23 störf lögð niður en þrír fengu boð um annað starf. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar sagði í vikunni að þetta hefði verið nauðsynlegt til að bregðast við slæmri fjárhagsstöðu.
Daði Már segir fjölgun opinberra starfsmanna fyrst og fremst hafa verið hjá sveitarfélögum undanfarin ár. Þá sé tilhneiging til að taka erfiðar ákvarðanir snemma á kjörtímabilum.
„Þannig að það að þau taki þessar ákvarðanir, sérstaklega núna í kjölfar kosninga, kemur kannski ekki á óvart. En [...] auðvitað er atvinnuleysi eitthvað sem við viljum ekki.“
Hagræðingarkrafa stjórnvalda leiðir til uppsagna
Varðandi uppsagnir hjá opinberum stofnunum. Margar eru að segjast vera að segja upp vegna hagræðingarkröfu – er ykkar hagræðingarkrafa að neyða stofnanir til uppsagna?
„Já, já, það liggur alveg fyrir. Þegar hún var kynnt þá lá alveg fyrir að þetta myndi leiða til einhverra uppsagna, þótt megnið af því sé tekið í gegnum náttúrulega veltu,“ segir Daði Már.
Hann segir mikilvægt að ríkið sé rekið eins hagkvæmt og hægt sé.
„Svo vil ég benda á það að nú lítur út fyrir að verðbólguþróun sé að þróast í rétta átt. Það þýðir auðvitað að svigrúm íslenska seðlabankans til að örva hagkerfið er umtalsvert.“