Frakklandsforseti skrifaði færslu á samfélagsmiðilinn X í gær þar sem hann vottar Úkraínumönnum samúð vegna drónaárásar Rússa í Dnipro. Lenti dróninn á lestarpalli í borginni og létust þrettán og fjöldi til viðbótar særðist en fólkið var að bíða eftir að komast um borð í farþegalest sem stefnt var til Sapórisjía þegar árásin var gerð.
Í færslunni skrifar Macron að nauðsynlegt sé að stefna á meira en staðbundið vopnahlé líkt og það sem nýlega var samið um í Olechky. Jafnframt skrifar Macron að óásættanlegt sé að Rússar haldi áfram að stuðla að stigmögnun átakanna með því að ráðast á óbreytta borgara.
„Saman þurfum við að tvöfalda viðleitni okkar til að ná varanlegum friði og ná Rússum að samningaborðinu,“ skrifaði Macron.
Þessi orð virðast hafa farið fyrir brjóstið á Heimi Má Péturssyni, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Í ummælum við færslu Macron biður Heimir Frakklandsforseta vinsamlega að gera meira en að halda ræður.
@EmmanuelMacron @ZelenskyyUa Dear Macron, stop this speaches and send troops in to fight for Ukraine and Europe and have the nuces ready to skoot at once.
— Heimir Már Pétursson (@HeimirMar) October 29, 2026
„Hættu ræðuhöldunum og sendu hermenn til að berjast fyrir Úkraínu og Evrópu og vertu með kjarnorkuvopnin til að skjóta, umsvifalaust,“ skrifar Heimir Már.
Hvorki náðist í Heimi Má né Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, við vinnslu þessarar fréttar.