Íbúar Árneshrepps borga sama kílómetragjald og aðrir Íslendingar. Engu að síður er þjónusta Vegagerðarinnar umtalsvert minni í sveitarfélaginu heldur en annars staðar á landinu.
Nú er vegurinn kominn í vetrarþjónustu sem þýðir að Vegagerðin heldur ekki úti reglulegu eftirliti með veginum og litlar upplýsingar er að fá um ástand hans og færð á umferdin.is.
Sveitarfélagið segir akstursskilyrði mjög varhugaverð og efast um að vegurinn standist öryggiskröfur. Ástandið sé óviðunandi, sérstaklega í ljósi þess að grunnskólabörn eru keyrð til Hólmavíkur einu sinni í viku.
„Ég leyfi mér að efast að þetta standist skoðun þegar horft er til jafnaðarreglunnar, að það sé borgað jafn mikið fyrir notkun á þessum vegi og annars staðar á landinu,“ segir Héðinn Birnir Ásbjörnsson, sem á sæti í samgöngunefnd Árneshrepps, í Síðdegisútvarpinu.
Grjóthnullungar á vegum
Á Facebook-síðu Árneshrepps birtist færsla í gær þar sem íbúar voru hvattir til að láta vita hvernig ástandið á vegunum sé í ljósi þess að Vegagerðin væri hætt að halda úti fastri vöktun og brygðist nú aðeins við tilkynningum.
Degi fyrr hafði sveitarfélagið birt mynd af grjóthnullungum á veginum við Veiðileysukleif þar sem fólk var hvatt til að fara varlega. Þá kom fram í færslunni að grjót hefði einnig fallið á Kjörvogshlíð.
Gerði við fimmtíu sprungin dekk í sumar
Héðinn ólst upp í Djúpavík þar sem fjölskylda hans rekur hótel. Ferðalangar í sveitarfélaginu lenda oft í vandræðum vegna ástandsins á vegunum og þurfa þá íbúar og hótelstarfsmenn að bregðast við. Í sumar segist Héðinn hafa gert við fimmtíu sprungin dekk í sumar.
Héðinn segir íbúa ekki vera að krefjast þess að bundið slitlag verði lagt heldur aðeins að vegurinn verði bættur og hann þjónustaður yfir vetrartímann.
Fyrir utan að þetta hafi áhrif á daglegar ferðir íbúa hefur ástand vegarins einnig áhrif á verðmætasköpun í sveitarfélaginu. Í maí var til að mynda ekki hægt að landa í Norðurfirði í tvær vikur vegna þungatakmarkana á veginum.