Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hefur beðist afsökunar á því að hafa hvatt forseta Frakklands til að senda hermenn til Úkraínu og láta gera kjarnorkuvopn klár til notkunar. Hefur hann nú eytt reikningi sínum á samfélagsmiðlinum X þar sem hann lét þessi orð falla.Heimir skrifaði þetta í athugasemd við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta á X. Var forsetinn með færslunni að bregðast við drónaárás Rússa á lestarstöð í Dnipro í Úkraínu en í henni létust þrettán og fjöldi særðist.
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár