Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sinn gamli flokkur sé í bullandi vandræðum og þurfi að fara í naflaskoðun á því hvers vegna flokknum hafi gengið svona vel í sveitarstjórnarkosningunum en færri vilji kjósa hann til þings. „Sjálfstæðisstefnan hefur sigrað. En Sjálfstæðisflokkurinn er í bullandi vandræðum,“ segir Vilhjálmur í viðtali við Björn Þorláksson á Samstöðinni.
Vilhjálmur segir sinn gamla flokk í bullandi vandræðum - Þetta sé stóra verkefnið núna