Franska fyrirtækið Qair efndi til kynningarfundar á samfélagslegum og umhverfisáhrifum sem að vindorkuver á Hnotasteini myndi hafa á nærumhverfið. Fundurinn fór fram á Raufarhöfn í hádeginu í dag og sambærilegur fundur fór fram á Kópaskeri í gærkvöldi.
Íbúar fjölmenntu á fundina og létu í sér heyra. Betur var mætt á Kópaskeri en íbúar á Raufarhöfn kvörtuðu yfir því að þessi fundur væri í hádegi á föstudegi.
Fundurinn var á vegum Qair, fyrirtækis sem áformar að reisa 30 vindmyllur á Hólaheiði í Norðurþingi. Þar kynntu þeir niðurstöðu umhverfismats á vindorkuverið. Sömuleiðis kynntu þeir niðurstöður sínar á samfélagslegum áhrifum uppbyggingarinnar.
Samkvæmt könnun Maskínu fyrir Qair eru 53% íbúa Kópaskers andvígir vindorkuveri og 41% íbúa á Raufarhöfn. Forsvarsmenn Qair telja að vindorkuver myndi skila sveitarfélaginu Norðurþingi yfir fimm milljarða í tekjur á næstu 25 árum og sömuleiðis tryggja 470 ársverk á tímanum.
Sjötti áfangi rammaáætlunar setur virkjunarkostinn í biðflokk. Sveitarstjórn Norðurþings hefur hvatt til þess að vindorkuverið verði sett í nýtingarflokk.
Það sem helst brann á íbúum á Raufarhöfn voru umhverfisáhrif vindorkuversins og sömuleiðis að öll gögn sem hefðu komið fram varðandi möguleg jákvæð samfélagsleg áhrif væru gögn sem Qair hefði unnið sjálft og væru ótrúverðug.
Íbúum var heitt í hamsi á fundinum, sem stóð í tæpa 3 klukkutíma.