Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að gagnrýni Harðar Arnarsonar, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar, á Samkeppniseftirlitið veki upp spurningar.
Hörður hvetur til þess í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að fyrirkomulag samkeppniseftirlits verði endurskoðað. Hann vill að aðskilnaður rannsóknar, málsóknar og ákvörðunar um brot verði skýrður betur.
Tilefnið er ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi úr gildi 1,4 milljarða króna sekt á fyrirtækið.
„En það er alltaf tilefni til endurskoðunar og ég er með slíkt mál á þingmálaskrá í vetur, að skerpa fókusinn þegar kemur að samkeppnislögum og líka með mál sem varða endurskoðun og breytingar á stofnanaumgjörðinni,“ segir Hanna Katrín.
„Þannig að án þess að þetta sé beintengt þá er málið þannig að með þessar valdheimildir – með þessa miklu ábyrgð og þetta mikilvæga hlutverk sem Samkeppniseftirlitið leikur, þá þurfum við alltaf að vera á tánum.“
Til skoðunar að breyta fyrirkomulagi forstjóra SKE
Páll Gunnar Pálsson hefur verið forstjóri Samkeppniseftirlitsins í 21 ár. Spurð af hverju starf hans lúti ekki sömu lögmálum og starf annarra embættismanna, sem ráðnir séu til fimm ára og oft endurráðnir til fimm ára í senn segir Hanna Katrín:
„Það raunverulega tengist í mjög einföldu máli þeirri lagaumgjörð sem stofnuninni var búin á sínum tíma. Og í sjálfu sér breytist ekkert nema lögum verði breytt.“
Hefurðu í hyggju að breyta lögunum í þessa átt?
„Það er eitt af því sem er í skoðun.“