Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir tölvupóstsendingu flugrekstrarstjóra Icelandair til flugmanna með samningstillögu í kjaradeilu félaganna varði við lög.
Flugrekstrarstjórinn sendi flugmönnum félagsins póst í dag með samningstillögu flugfélagsins í kjaradeilunni við Icelandair. Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir sendinguna dapurlega.
„Fyrst ber að nefna að samningum er ekki komið á með þessum hætti. Samningsumboð félagsmanna FÍA liggur hjá samninganefnd FÍA og það er þar sem samtalið á að eiga sér stað. Ekki með þessum hætti. En þetta er svosem ekki eitthvað sem kemur á óvart. Þetta hefur svosem verið gert áður,“ segir Jón Þór.
Kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair var vísað til ríkissáttasemjara í lok apríl. Í júní sammæltust samninganefndirnar um að vinna eftir verkáætlun ríkissáttasemjara undir friðarskyldu. Markmiðið var að klára samninga fyrir 15. september en það tókst ekki.
Í pósti flugrekstrarstjórans, Arnars Más Magnússonar, til flugmanna segir að hann telji rétt að deila samningstillögum með flugmönnum þar sem FÍA hafi lýst yfir árangurslausum viðræðum. Jón Þór staðfestir við fréttastofu að það sé afstaða FÍA til viðræðnanna.
„Þær eru stopp eins og er. Það er ekki búið að boða samningafund og því miður. Við höfum verið í ríflega tvö ár að reyna að ná saman og við höfum að við teljum sýnt mikla þolinmæði og reynt að sýna skilning. En það virðist ekki duga til og þá er gripið til svona örþrifaráða.“
Jón Þór segist ekki vilja tjá sig um það sem fram kemur í samningatillögunum sem sendar voru flugmönnum. Tekið skal fram að fréttastofa hefur aðeins séð tölvupóst Arnas Más til flugmanna en ekki samningatillögurnar sem fylgdu í viðhengi.
„Fyrir það fyrsta eru rangfærslur í þessu skjali. Það er bara eitthvað sem við þurfum að fara yfir með okkar félagsmönnum. Og menn vita betur. Þannig að þetta er ekki til þess fallið að byggja upp traust eða til þess að ná mönnum saman við samningaborðið. Það er bara mjög miður að menn skuli nota svona vinnubrögð,“ segir Jón Þór.
„Þetta varðar við lög nr. 80 frá 1938 um stéttarfélög og vinnudeilur, einkum 4. greinina. Ég vona að menn geri sér bara grein fyrir því.“