Íbúar í Norðurþingi eru ósammála um fyrirhugað vindorkuver að Hnotasteini. Framkvæmdaraðilar lofa sveitarfélaginu tekjum og íbúum störfum.
Franska fyrirtækið Qair stóð fyrir opnum kynningarfundi á vindorkuveri á Hnotasteini á Raufarhöfn í dag og á Kópaskeri í gær. Fundirnir voru vel sóttir og stóðu í þrjá og fjóra tíma. Íbúum stendur greinilega ekki á sama hvort vindorkugarður rísi á Hólaheiði.
Halldóra Gunnarsdóttir, verkefnastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Norðurhjara, telur að sífellt fleiri séu á móti vindorkuverinu.
„Ég held að það séu fleiri og fleiri að verða móti þessu þegar þeir gera sér grein fyrir því hvað þetta er stórkostlegt, hvað það er mikil mengunarhætta og hvað þetta skerðir myrkrið og víðáttuna sem við höfum hér.“
Milljarða tekjur og hundruð ársverka
Á fundunum var kynnt 230 blaðsíðna umhverfismatsskýrsla. Að mati Qair mun framkvæmdin hafa mjög jákvæð áhrif á samfélagið í Norðurþingi.
„Þetta eru fjölmörg störf sem geta skapast af þessu verkefni, mjög mikil fasteignagjöld sem skapast og útsvarstekjur í tengslum við þessi störf til að mynda og margir fleiri þættir sem farið er yfir í matsskýrslunni,“ segir Arnór Tumi Jóhannsson, verkefnastjóri vindorkugarðsins að Hnotasteini.
Talað er um milljarða tekjur sveitarsjóðs Norðurþings og hundruð ársverka á svæðinu í tengslum við uppbygginguna.
Kjartan Páll Þórarinsson, formaður byggðarráðs Norðurþings, segir sveitarfélagið opið fyrir fjölbreyttum tækjum til að efla byggðina.
„Við erum sveitarfélag sem hefur lent í alls konar áföllum í gegnum tíðina. Við höfum misst kvóta nánast úr öllum byggðarlögum og þekkjum það sem því fylgir þannig að við erum opin fyrir fjölbreyttum tækjum.“
Tillögu um íbúakönnun hafnað
Íbúar voru ekki á einu máli um arðsemi vindorkuversins og telja Qair vera búnir að gullhúða gagnsemi þess.
Orkumannvirki eru undanþegin fasteignamati og skila því engum fasteignaskatti. Því er ekki ljóst hvernig orkuverið eigi að skila Norðurþingi skatttekjum. Til stendur að afnema undanþáguna með frumvarpi sem innviðaráðherra hyggst leggja fram í janúar á næsta ári.
Arnór Tumi segir útreikninga Qair þó ekki úr lausu lofti gripna. „Það eru ákveðin gögn sem liggja þessum greiningum til grundvallar.“
Halldóra segir ekkert í hendi varðandi skattheimtu og að fórnarkostnaðurinn sé of mikill.
„Það er ekkert öruggt í þessum efnum um að til dæmis Raufarhöfn, þar sem við erum stödd, muni nokkurs njóta af þessu.“
Sveitarstjórn Norðurþings hafnaði tillögu minnihlutans um íbúakönnun um skoðanir fólks á vindorkuverinu og hefur enn ekki haldið íbúafund um málið.
Kjartan Páll segir sveitarstjórnina ekki vera að flýta sér.
„Við erum einfaldlega beðin um álit og þegar við erum beðin um álit af verkefnastjórn þá svörum við því. Okkur liggur ekkert á frekar en öðrum.“