Samband íslenskra sveitarfélaga tók saman uppgjör fimm stórra sveitarfélaga, Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Akureyrar. Við ræddum við Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðing samtakanna, um niðurstöðuna og um fjárhagsstöðu sveitarfélaga almennt.
„Það sem við sjáum miðað við árshlutauppgjör 2026 er að heildarafkoma sveitarfélaga er lakari en á sama tíma og á fyrra ári. Við sjáum að rekstrarniðurstaðan er neikvæðari heldur en hún var á fyrra ári. Og jafnvel þó við leiðréttum fyrir allskonar liðum sem hafa í raun ekki áhrif á sjóðstreymi, reiknaðar stærðir eins og verðbætur eða breytingar lífeyrisskuldbindinga eða slíkt, þá sjáum við að veltufé er að dragast saman. Mér reiknast til að ef við horfum á svona ein fimm stærstu sveitarfélögin sem hafa birt ársreikningana sína eða árshlutareikningana sína fyrir þau er veltu því að dragast saman og það er einhvers staðar í kringum 6% sem er óviðunandi,“ segir hún. Ekki sé nægilega mikið veltufé frá rekstri til að sveitarfélögin geti með góðum hætti fjárfest eða greitt af lánum sínum.
Að draga úr fjárfestingu og viðhaldi eins og að pissa í skóinn
Fjárfestingar eru ekki bara nýfjárfestingar heldur líka viðhald, svo sem á skólum, leikskólum, götum og þess háttar.
Saga bendir á að götur og holræsakerfi sveitarfélaga eru jafn verðmæt og þjóðvegirnir. Þá séu um 65% opinberra bygginga í eigu sveitarfélaga. Það skipti þess vegna miklu máli að nægilegur afgangur sé af hefðbundnum rekstri sveitarfélaga til þess að þau geti fjárfest og sinnt viðhaldi. Að draga úr nauðsynlegri fjárfestingu og viðhaldi sé eins og að pissa í skóinn sinn. Þegar þrengi að, eigi sveitarfélög til að skera niður fjárfestingar, þar með talið viðhald. „Eftir fjármálahrunið var fjárfestingarstig lágt í alveg tæpan áratug og við heyrum það bara enn þann dag í dag, í umræðunni, hvaða áhrif það hafði.“ Á fyrri helmingi þessa árs hafi sveitarfélög engu að síður fjárfest fyrir sambærilegt hlutfall af sínum tekjum og áður, þrátt fyrir verri afkomu, en þau þurftu að taka lán fyrir því, þannig að lántaka jókst.
Rekstur sveitarfélaganna fimm sem nefnd voru í upphafi er í mínus en mínusinn er mjög misstór. Í krónum talið var mesti hallinn hjá Reykjavík um 5,5 milljarðar króna og 1,9 milljarðar króna í Hafnarfirði og þar er hallinn langmestur af þessum fimm sé miðað við íbúafjölda. Hallarekstur á Akureyri, Garðabæ og Kópavogi var á bilinu 87-280 milljónir króna.
Mörg sveitarfélag nálægt 130% skuldaþaki
En er hægt að sjá einhverjar skýringar sem eru sameiginlegar á milli sveitarfélaga á þessum slaka rekstri?
„Já, það er margt sammerkt milli stóru sveitarfélaganna,“ segir Saga. Áframhaldandi útgjaldaþrýstingur hafi áhrif en verðbólga og vextir hafi líka hækkað. Þetta hafi mjög markverð áhrif á rekstur sveitarfélaga, enda skuldi þau umtalsvert og þær skuldir eru allar verðtryggðar.
Þessar skuldir eru töluverðar en þær eru mjög mismiklar. Saga bendir á að mörg sveitarfélög séu nálægt því 130% skuldaþaki A-hluta sem mælt er fyrir í frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi. Staðan er þó misjöfn - eins og nærri má geta þegar 61 sveitarfélag er í landinu.
„En við sjáum alveg að þau sem eru stór og sérstaklega þau sem hafa vaxið hratt eru þau sem eru skuldsettust og fá minnst eftir úr rekstrinum,“ segir hún.
Verði frumvarpið að lögum verður 130% skuldaþakið sett á A-hluta sveitarfélaga en undir hann fellur rekstur á skólum, félagsþjónustu og fleiri málaflokkum og byggir hann á hefðbundnum tekjustofnum. Í Kópavogi er þetta hlutfall 88% á Akureyri, Garðabæ og í Reykjavík er það á bilinu 106-109%. Í Hafnarfirði er hlutfallið 139% og það má nefna að það er 136% í Reykjanesbæ sem sagt yfir skuldaþakinu fyrirhugaða.
Afkomubatinn ekki eins góður í síðustu uppsveiflu
Útsvar er að meðaltali nánast í hámarki, er ekki svo og það er hægagangur í atvinnulífinu. Hvernig geta sveitarfélögin snúið þessari stöðu við?
„Þetta nefnilega óskaplega góð spurning,“ segir Saga en vill í þessu samhengi ræða stöðuna í samhengi við fjármálin yfir lengra tímabil. Árin 2023 til 2025 hafi verið prýðileg ár í rekstri sveitarfélaga, eftir mjög erfið ár í heimsfaraldrinum. Á þessum árum þegar hefði átt að vera hægt að búa í haginn, hefði afkomubati sveitarfélaga á hinn bóginn ekki verið sambærilegur og í fyrri uppsveiflum.
Síðasta uppsveifla hefði ekki verið nýtt nægilega vel til að fjárfesta eða greiða niður skuldir. Svigrúm sveitarfélaga til að milda áhrif niðursveiflna nú séu því minni.
Kostnaður hefur vaxið - en tekjurnar ekki
Á sama tíma og útsvarið er nánast í hámarki hafa sveitarfélög lýst því yfir að gjaldskrár muni ekki hækka umfram 2,5%. Útgjöldin halda samt áfram að aukast, sérstaklega til tiltekinna málaflokka.
„Þetta væri málaflokkur fatlaðs fólks eins og hefur oft verið talað um og líka leikskólastigið. Þetta eru málaflokkar þar sem kostnaðurinn hefur vaxið, í engu samræmi við íbúafjölgun, verðlag, laun eða eitthvað slíkt. Og þetta er þá bara í rauninni til marks um að þarna er verið að auka þjónustu eða þjónustugæði,“ segir hún. Það sé auðvitað erfitt þegar tekjur byggja á útsvari og fylgi launum og launaþróun en útgjöld til tiltekinna málaflokka geri það svo sannarlega ekki.
Leikskólagjöldin hafi ekki haldið við verðlag, launaþróun eða kostnað. Við sjáum að um aldamótin síðustu voru leikskólagjöld kannski að fjármagna fjórðung af og jafnvel meira af, af kostnaði leikskóla en núna er þetta komið niður í nær 7%. Leikskólagjöld sem foreldrar greiða fjármagna rúmlega 7% af kostnaði leikskóla.
Sem dæmi má nefna að árið 2006 var gjald fyrir átta klukkustunda vistun í leikskóla í Reykjavík um 19.000 kr. en er nú frá 26.000 kr. fyrir sambúðarfólk. Ef gjöldin hefðu fylgt vísitölu neysluverðs væri þau tæplega 50.000 kr.
Starfsfólki mun líklega fjölga, þrátt fyrir uppsagnir
Saga er ekki bjartsýn á rekstrarafkomu sveitarfélaga á þessu eða næsta ári.
En hvernig á að reka sveitarfélög og reksturinn skilar halla? Hafa þau svigrúm til að taka bara hærri lán?
Það sé ein leið, að taka hærri lán. Einnig sé hægt að forgangsraða eins og hefði verið gert í mörgum sveitarfélögum. Sveitarfélögin þurfi að ákveða hvort þau ætli að viðhalda núverandi þjónustu og taka velferðina að láni, eða forgangsraða og draga saman seglin einhvers staðar annars staðar.
Laun og launatengd gjöld eru um 65% af rekstrargjöldum sveitarfélaga og sum hafa farið þá leið að segja upp fólki. Í Reykjavík hefur stöðugildum t.d. verið fækkað um 130 og um 20 störf voru lögð niður í Hafnarfirði. En munar um þetta í rekstrinum?
Saga bendir á að um 33.000 manns sem starfi hjá sveitarfélögum að jafnaði og þjónustan sem þau veiti séu mannaflsfrek. Á þessu ári hafi starfsfólki fjölgað, bæði hjá ríkinu og sveitarfélögum. Fólk hafi verið ráðið til starfa í leikskólum og við félagsþjónust, þar sem oft hafi gengið brösulega að ráða, ekki síst þegar það er mikil spenna á vinnumarkaði og mikla atvinnu að fá alls staðar. Jafnvel þótt starfsfólki hafi verið sagt upp undanfarið, verði sú breyting minni en sem nemur þeim viðbótarstörfum sem bætast við á þessu ári.