Trump kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í Michiganríki í dag. „Noregur sökkar,“ sagði hann einnig.
Ljóst er að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbelsnefnd hefði ákveðið að veita lögmanninum og dómaranum Navanethem Pillay friðarverðlaunin í byrjun þessa mánaðar.
Ferðamálastofa Noregs (Visit Norway) sá sér leik á borði.
„Velkomin til skítalands,“ stóð ritað á auglýsingu ferðamálastofunnar sem birtist í vikunni á skilti á Times Square í New York, en Trump er sjálfur frá stórborginni.
Raunar notaði forsetinn hugtakið „shit house country“ til að lýsa Noregi og fyrir vikið hefur ferðamálastofan ráðist í auglýsingaherferð þar sem vakin er athygli á fallegustu salernisaðstöðum, þ.e. „shit houses“, sem finna má víða í Noregi.
Anne-Signe Fagereng, talsmaður nýsköpunarmiðstöðvar Noregs, segist við norska ríkismiðilinn ekki geta gefið upp hvað auglýsingin á Times Square hafi kostað, en það sé þó vel undir hálfri milljón norskra króna (minna en 6,5 milljónir).
Fagereng kveðst þar ekki óttast að auglýsingin gæti reitt forsetann enn frekar til reiði þannig að það gæti komið niður á norsku ferðaþjónustunni. „Það er ekkert sem bendir til þess. Við erum að fá gríðarlega jákvæð viðbrögð frá bandaríska markhópnum,“ segir hún við NRK.
Þau hafi ekki rætt við utanríkisráðuneytið áður en ráðist var í gjörninginn en þau eigi nú í virkum samskiptum við ráðamenn.