Allar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út á tólfta tímanum í kvöld vegna elds í húsi við Reiðvað í Norðlingaholti. Á myndum af vettvangi sást stórt reykský rísa upp úr húsinu.
Vel gekk að slökkva eldinn að sögn Aldísar Rúnar Lárusdóttur varaslökkviliðsstjóra.
„Það er búið að slökkva og slökkvistarf gekk vel. Það var einn einstaklingur fluttur á slysadeild til skoðunar,“ segir Aldís. Líðan hans liggi ekki fyrir en ekki hafi verið útlit fyrir að vikomandi væri í lífshættu.
„Og svo var hundi bjargað af svölum,“ bætir hún síðan við og segir að reykkafar hafi sótt gæludýrið.
Eldsupptök eru enn ókunn en slökkviliðið er enn á svæðinu þar sem vinna við reykræstingar og hreinsuns vettvangs stendur enn yfir.