Hugmyndin um hinn sterka og ráðandi karlmann, sem tekur allar ákvarðanir og hefur stjórnina í ástarsamböndum, virðist ekki höfða til kvenna í sama mæli og stundum er haldið fram. Ný könnun bendir til þess að konur kunni mun betur að meta karlmenn sem sýna tilfinningar, veita stuðning og eru tilbúnir að deila ábyrgð og frumkvæði í sambandinu.Frá þessu greinir New York Post, sem fjallar um niðurstöður könnunar sem stefnumótaappið Chyrpe stóð fyrir.
Konur snúa baki við ákveðinni tegund karlmanna – Þetta vilja þær í staðinn