Ungmenni gripu til mótmæla í tugum þýskra borga í dag. Þau segja pólitíska elítu hunsa áhyggjur þeirra og kalla eftir afsögn Friedrich Merz Þýskalandskanslara. Mótmælin voru skipulögð af hópi sem kallast „GenZ regelt!“ sem þýða mætti sem „Z-kynslóðin sér um þetta!“
Hópurinn segir að 120 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum sem lögregla segir hafa að mestu verið „mjög friðsæl“.
Í Hamborg og Köln beitti lögregla vatnsbyssum á mótmælendur sem köstuðu flugeldum.
Einnig var mótmælt í Berlín en mótmælin þar voru ekki skipulögð af „GenZ regelt!“-hópnum. Þar var eggjum og flöskum kastað í lögreglu.
Molotov-kokteil kastað í lögregluþjón í París
Keimlík mótmæli hafa verið á Ítalíu og í Frakklandi síðustu vikur. Í dag hafa hundruð þúsunda Frakka mótmælt lögregluofbeldi og háum framfærslukostnaði, meðal annars. Fleiri en 420 hafa verið handtekin.
Mótmælin í Frakklandi voru með rólegra móti fyrst um sinn. Samkvæmt yfirvöldum mótmæltu 70 þúsund manns í París. Fjöldi mótmælenda klæddist hrekkjavökubúningum. Meðal annars sáust skilti sem á stóð „Engin þörf á táragasi til þess að framtíðin líti ömurlega út“ og „Klædd sem reiður borgari á hrekkjavökunni“.
Síðdegis fór að bera á fregnum af átökum í París milli mótmælenda og fjölmenns liðs lögreglu.
Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu sem svaraði með táragasi og kylfum. Einn lögreglumaður hlaut minni háttar meiðsli eftir að hafa fengið í sig Molotov-kokteil.
Innanríkisráðherra Frakklands, Laurent Nunez, kenndi öfga-vinstri hópum um árásir á lögreglu. Hann lýsti Molotov-árásinni sem „tilraun til manndráps“ og bætti við að yfirvöld væru tilbúin í slaginn við þau sem leiti að átökum.
Þá sagði Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, að þeim sem bæru ábyrgð á Molotov-árásinni yrði refsað af mikilli hörku.
Sett hefur verið á útgöngubann í hverfunum Republique og Chatalet-Les Halles í París frá 11:00 í kvöld til 6:00 í fyrramálið að staðartíma.