Ólétt kona var skotin til bana og sex voru særðir þegar skotum var hleypt af í skammtímaverslun sem selur hrekkjavökuvarning í San Fransisco í Bandaríkjunum á föstudagskvöld. Los Angeles Times greinir frá.
Lögreglumenn brugðust við útkalli klukkan 8.30 að staðartíma, eða hálf fjögur um nótt að íslenskum tíma. Margar fjölskyldur voru í búðinni að versla hrekkjavökuvarning á síðustu stundu.
Sex karlmenn særðir, þrír lífshættulega
Þrír karlmenn, 16, 19 og 32 ára, voru einnig skotnir og eru þeir allir í lífshættu. Annar 23 ára maður særðist einnig alvarlega. Þá voru tveir karlmenn, 18 og 43 ára, meðhöndlaðir vegna sára af völdum byssuskota en þeir voru útskrifaðir af spítala skömmu síðar.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en talið er að skotárásin hafi beinst að einhverjum sem staddur var í búðinni. Konan sem lést hefur verið nafngreind. Hún heitir Constance Hages og hún skilur eftir sig fjögur börn auk þess sem lést með henni.