Í yfirlýsingu lögreglu segir að annar hinna handteknu sé sextán ára. Þeir séu grunaðir um að skipuleggja óeirðir á eyjunni í nafni svokallaðra „Blocus“-hópa.
Að sögn lögreglu nýttu þeir sér dulkóðaða spjallhópa og samfélagsmiðla til þess að hvetja til skemmdarverka, rána og árása gegn lögreglumönnum. Þeir hafi verið handteknir í gær, áður en þeir létu til skarar skríða.
Skilaboð sem höfðu farið í dreifingu vöktu ugg meðal íbúa, fyrirtækjaeigenda og yfirvalda, að sögn Canarian Weekly.
Nafnlausir reikningar boðuðu til samkomu á Calle del Castillo í Santa Cruz og Milla de Oro á Amerísku ströndinni, en þá götu hafa Íslendingar sem sækja eyjuna heim iðulega kallað „Laugaveginn“.