Innkirtlasérfræðingur segir að lögleg peptíð geti markað þáttaskil í lækningu og meðferð margra alvarlegra sjúkdóma. Ólöglegur innflutningur efnanna sé hins vegar mikið áhyggjuefni og notkun þeirra stórhættuleg. Fólk sem flytur efnin til landsins og selur þau á svörtum markaði hefur hagnast mikið síðustu misserin.
Yfir eitt hundrað lögleg peptíð eru í notkun hér á landi og sum hafa verið uppáskrifuð í áratugi. Þau eru til að hafa stjórn á sykursýki, örva fæðingarhríðar, við fylgikvillum HIV, sem vaxtarhormón o.fl. Á síðustu árum hafa peptíð verið notuð við þyngdarstjórnun og má þar nefna lyf eins og Wegovy og Ozempic.
„Við vitum ekkert hvað er í þessu“
Á sama tíma hefur notkun ólöglegra peptíða stóraukist. Þau koma flest frá Kína og eru seld á svörtum markaði, á netinu, af einkaþjálfurum eða milli vina og kunningja svo dæmi séu tekin.
„Við vitum ekkert hvað er í þessu,“ segir Arna Guðmundsdóttir, innkritlasérfræðingur. „Í besta falli getur verið ekkert í þessu og þá eru náttúrulega engin áhrif. Þá er hreinlega verið að selja þér lyfleysu. En svo getur líka verið mjög mikið af einhverjum efnum og þú getur fengið ofskömmtun sem að við vitum ekkert hvaða afleiðingar getur haft.“
Ólöglegu efnin geta valdið krabbameinum, nýrna- og/eða lifrarbilun, hjartasjúkdómum og valdið ofnæmi og sýkingum.
„Ég er að sjá talsvert mikið af fólki sem er að nota þetta og maður sér mjög mikið þyngdartap. Það eru mikil loforð um alls konar bata, bæði þyngdarstjórnun, endurheimt eftir áverka, bætta frammistöðu í íþróttum og það verður örugglega mikil umræða um þetta í komandi alþjóðlegum keppnum eins og Ólympíuleikum og slíku,“ segir Arna.
Erfitt og/eða ómögulegt sé að greina efnin með blóðprufum og þvagprufum.
„Svo er eitt sem er kallað Barbie-peptíð og það veldur bæði þyngdartapi og brúnku í húð,“ segir Arna.
Rannsóknir á peptíðum gætu markað þáttaskil í lækningu og meðferð
Miklar vonir bundnar við rannsóknir á peptíðum og stefnt sé að því að lögleiða sum þeirra.
Nú er verið að rannsaka hvort unnt sé að nota peptíð við vöðvarýrnunarsjúkdómum eða eftir heilablóðföll og/eða hjartaáföll. Það getur verið svo ofboðslega víðtæk notkun ef að við getum sýnt fram á að þetta raunverulega hafi áhrif,“ segir Arna.
Reglugerð ráðuneytis í smíðum
Refsiheimildir við innflutningi og sölu ólöglegra peptíða eru engar. Sérfræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu segir brýnt að banna sölu ólöglegra peptíða með reglugerð sem unnið er að og gæti tekið gildi fyrir jól.
Bjarni Sigurðsson, lyfjafræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu fjallaði um peptíð á fundi Háskóla Íslands og Landspítala í dag. Hann líkir ástandinu hér á landi varðandi peptíð við Villta vestrið.
„Og við höfum ekki neinar refsiheimildir. Við sjáum að þetta er mjög vaxandi vandi og það sést líka í nágrannalöndunum. Það er orðin mikil aukning þar sem fólk er að veikjast af völdum peptíða,“ segir Bjarni.
Markaðssetning þessara efna beinist að ungu fólki á mótunarárum og í viðkvæmri stöðu og fer oft fram í gegnum samfélagsmiðla.
„Þannig að við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort að við getum styrkt löggjöfina þannig að við getum bannað þessi efni og komið inn refsiheimildum,“ segir Bjarni.
Svartamarkaðsbrask með hættuleg efni
„Það er greinilega mikil velta þarna á ferðinni. Það er aukin sala í sprautunálum, það er aukin beiðni um innflutning á þessum efnum og það er fátt hægt að gera við því eins og löggjöfin er núna.
Ólöglegu efnin séu stundum gerð upptæk en viðurlög séu engin.
„Efnið er bara gert upptækt vegna þess að þetta eru fölsuð ólögleg lyf. En ef við myndum setja löggjöf þá fengjum við inn refsiheimildir og það hefði þá kannski einhvern fælingarmátt í innflutningi og sölu þessara efna.“
Unnið sé að reglugerð í heilbrigðisráðuneytinu sem verður lögð fyrir ráðherra.
„Reglugerð getur tekið gildi á skömmum tíma. Þannig að við gætum þess vegna náð þessu fyrir jól ef það er pólitískur vilji til þess,“ segir Bjarni.